Álag á skuldatryggingar bankana hefur margfaldast 23. nóvember 2007 11:55
Álag á skuldatryggingar íslensku viðskiptabankanna hefur hækkað mikið undanfarna mánuði og er nú hærra en áður hefur sést. Hefur það margfaldast frá því í sumar. Í dag er 5 ára tryggingarálag Kaupþings komið upp í 367 pkt, álag Landsbankans er í 211 pkt og Glitnis í 271 pkt. Skuldatryggingarálag fjármálafyrirtækja hefur almennt farið hækkandi í heiminum frá því í sumar þegar áhrifa undirmálslánakreppunnar fór að gæta með tilheyrandi lausafjárþurrð og vaxandi áhættufælni á mörkuðum. Morgunkorn Glitnis fjallar um málið og þar segir að frá sumarbyrjun, áður en undirmálskreppan braust út, hefur álagið á íslensku viðskiptabankana margfaldast. Þann fyrsta júní síðastliðinn stóð álag Kaupþings í 29 pkt, Landsbankans í 19 pkt og Glitnis í 24 pkt. Verðið á skuldatryggingum er að öllu jöfnu notað sem mælikvarði á það traust sem bankarnir njóta á alþjóðlegum fjármagnsmarkaði. Því lægra sem álagið er því betra, enda endurspeglar álagið trú fjárfesta á því að fjármálafyrirtæki geti staðið við skuldbindingar sínar. Af því leiðir að fjármögnun reynist ódýrari þegar álagið er lágt. Hafa verður í huga að markaður fyrir skuldatryggingar íslensku bankana er lítill og óskilvirkur, og því nauðsynlegt að taka ofangreindum tölum með talsverðum fyrirvara.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira