Risasala Eimskips vestan hafs 1. október 2007 09:46
Eimskip hefur lokið sölu á 23 kæli- og frystigeymslum í Bandaríkjunum og Kanada fyrir 385 milljónir kanadadollara eða um 24 milljarða króna. Andvirði sölunnar verður nýtt til að greiða niður skuldir vegna yfirtöku á kanadíska félaginu Atlas Cold Storage í nóvember 2006. Eimskip hefur undanfarið ár yfirtekið bæði Atlas, sem var annað stærsta kæli- og frystigeymslufyrirtækið í Norður Ameríku og Versacold, sem var það þriðja stærsta. Eimskip hefur því náð leiðandi stöðu í geymslu kæli- og frystivara með hátt í 200 kæli- og frystigeymslum í fimm heimsálfum. Velta Atlas Cold Storage og Versacold er um 1.200 milljónir kanadadollara á ári eða um 74 milljarðar króna. Samtals reka félögin um 120 kæli- og frystigeymslur í Bandaríkjunum, Kanada, Argentínu, Ástralíu og Nýja Sjálandi og hjá þeim starfa um 8.500 manns. "Við teljum sölu fasteigna Atlas vera mjög mikilvægan áfanga í frekari uppbyggingu kæli- og frystigeymslurekstrar Atlas og Versacold. Rekstur félaganna gengur vel og með sölu fasteignanna geta stjórnendur félagsins einbeitt sér að frekari uppbyggingu og þróun á sviði geymslu og flutninga á kæli- og frystivörum," segir Baldur Guðnason, forstjóri Eimskips. "Undanfarin misseri hefur Eimskip byggt upp alþjóðlegt flutninganet á sviði hitastýrðra flutninga og er nú langstærsta kæli- og frystigeymslufyrirtækið með um 13%- 15% markaðshlutdeild á heimsvísu. Að auki er verðmæti fasteignanna yfir væntingum okkar sem er mjög jákvætt miðað við núverandi stöðu á alþjóðlegum lánamörkuðum. Við höfum staðið við markmið okkar um að greiða allar skuldir vegna yfirtöku Atlas Cold Storage fyrir um ári síðan. "
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Von, hugrekki og virðing við lok lífs Samstarf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Bandaríkjamenn banna innflutning dróna Viðskipti erlent Landsbankinn sýknaður af öllum kröfum í Vaxtamálunum Neytendur Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira