Birgir á höggi undir pari í Frakklandi 14. júní 2007 19:29 Mynd/Eiríkur
Birgir Leifur Hafþórsson, atvinnukylfingur úr GKG, lék fyrsta hringinn á Open de Saint-Omer mótinu í Lumbres í Frakklandi í dag á 70 höggum, eða einu höggi undir pari. Hann er sem stendur í 27.-44. sæti. Birgir Leifur fékk þrjá fugla á hringum í dag (1., 10. og 16. holu) og tvo skolla (á 2. og 18. holu). Fresta varð leik um tíma í dag vegna þrumveðurs sem gekk yfir völlinn.Rangt skor var settinn á 10. braut á heimasíðu mótsins í dag, en þar var Birgir sagður hafa leikið á pari en hann fékk fugl og lék hann því fyrstu 9 holurnar á einu höggi undir pari, en ekki pari eins og við greindum frá fyrr í dag.Þetta er ellefta mótið sem hann tekur þátt í á Evrópumótaröðinni í ár og hefur hann komst í gegnum niðurskuðrinn á sjö mótum til þessa. Keppendum verður fækkað niður í 70 eftir hringinn á morgun og ætti Birgir Leifur að eiga góða möguleika á að komast áfram með svipuðum leik á morgun. Hann er sem stendur í 155. sæti á peningalista evrópsku mótaraðarinnar með 65.229 evrur (5,5 milljónir ísl. kr.) í verðlaunafé.Írinn David Higging er á besta skori dagsins, 65 höggum eða 6 höggum undir pari. Síðan kemur Ástralinn Simon Nash á 66 höggum. Sex kylfingar léku á 67 höggum, eða 4 höggum undir pari. Það eru: Anders Schmidt Hansen frá Danmörku, Michael Lorezo-Vera frá Frakklandi og Spánverjarnir Carl Suneson og Santago Luna og Englendingarnir Daniel Denison og Marcus Higley.Frétt af Kylfingur.is
Golf Mest lesið Albert svaraði eftir að hafa verið sakaður um hugleysi Fótbolti Salah ekki með Liverpool til Ítalíu Enski boltinn Óli Jó kallar ráðninguna á Jóa Kalla algjört bull Íslenski boltinn „Hortugasta klapp sem ég hef séð“ Körfubolti „Hann er með einhverjar Ibiza-myndir af Slot“ Enski boltinn Dæmd í fjögurra ára fangelsi Fótbolti „Ég myndi bróka hann inn í klefa“ Körfubolti Búist við að Salah verði hent úr hóp Enski boltinn Þriggja ára strákur setti heimsmet í skák Sport Langhlauparar í meiri hættu að fá krabbamein Sport Fleiri fréttir Bananahýði gerði Rory McIlroy erfitt fyrir Dáður en umdeildur kylfingur látinn Gríðarleg fjölgun kylfinga: „Aðstaðan sprungin í höfuðborginni“ Barnabarn Donalds Trump: „Ég sló mörg góð högg, bara á ranga staði“ Vildi ekki svara spurningum um afa sinn, Donald Trump Tóku símana af stelpunum alla keppnisferðina Sjá meira