Einar Hólmgeirsson kominn af stað eftir meiðsli 17. mars 2007 20:35 Einar skoraði fimm mörk fyrir Grosswallstadt í dag NordicPhotos/GettyImages
Hamburg styrkti stöðu sína í öðru sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í dag með góðum sigri á Flensburg á heimavelli 33-31. Leikurinn var fjörugur og skemmtilegur og var sýndur beint á Sýn. Alls voru fjórir leikir á dagskrá í deildinni í dag og í kvöld og þar bar hæst að Einar Hólmgeirsson er nú að ná sér á skrið á ný eftir meiðslin sem kostuðu hann þátttöku á HM í Þýskalandi. Þeir Roman Pungartnik, Torsten Jansen, Pascal Hens og Guillaume Gille skoruðu allir sex mörk hver fyrir Hamburg í dag, en Marcin Lijewski skoraði 9 fyrir Flensburg og Lars Christiansen skoraði 7 mörk. Maður leiksins var þó klárlega gamla brýnið Gordan Stojanovic hjá Hamburg, en hinn 41 árs gamli markvörður varði 19 skot í leiknum. Wilhelmshavener lagði Minden 28-23 eftir að hafa verið með forystu 15-11 í hálfleik. Tobias Shröder skoraði 10 mörk fyrir Wilhelmshavener en Gylfi Gylfason komst ekki á blað. Mirza Cehajic og Stephan Just skoruðu 7 mörk fyrir Minden og Snorri Steinn Guðjónsson 3 og Einar Örn Jónsson 2. Grosswallstadt fékk þungan skell á heimavelli gegn Nordhorn 33-26 eftir að hafa verið með fjögurra marka forystu í hálfleik. Alexander Petersson skoraði 7 mörk fyrir Gross og Einar Örn Hólmgeirsson skoraði 5 mörk. Loks steinlá Lubbecke á heimavelli fyrir Kronau Östringen 33-18 eftir að hafa verið undir 19-6 í fyrri hálfleik. Þórir Ólafsson skoraði eitt mark fyrir Lubbecke en David Szlezak skoraði 10 mörk fyrir gestina.
Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti „Gríðarlega særandi að hlusta á þetta“ Sport Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Íslenski boltinn Ísland - Króatía 5-0 | Íslensk einstefna á Laugardalsvelli Fótbolti Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Handbolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Fleiri fréttir Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum Sjá meira