Lögregla rýmdi Ungdomshuset 1. mars 2007 07:52 Mynd/TV2
Lögreglan í Kaupmannahöfn gerði áhlaup og rýmdi Ungdomshuset á Norrebro á svipstundu í morgun. Þegar hefur fjöldi mótmælanda safnast saman og búist er við hörðum átökum. Lögregla hefur handtekið um 20 mótmælendur, þ.á.m. hóp sem reyndi að komast framhjá vegtálmum. Lögreglan mætti með mikið lið og þyrlur og henti öllum út á innan við hálftíma. Sérsveitarmenn sigu niður á þak hússins sem hefur verið hertekið af ungmennum undanfarnar vikur en miklar deilur hafa staðið um hvort starfsemi hússins mætti halda áfram. Lögregla hefur umkringt húsið með vegatálmum og eftirliti og varna fólki að koma nálægt húsinu. Þegar í morgun hefur fjöldi svartklæddra ungmenna safnast saman við húsið og reyna þau hvað þau geta til að komast fram hjá tálmum lögreglunnar. Samkvæmt vefútgáfu Politiken hafa ungmennin hrópað að lögreglu og kastað grjóti í átt að lögreglumönnum. Í vetur brutust mikil átök út milli lögreglu og mótmælenda við Ungdomshuset og hefur lögregla búið sig undir að aukin harka færist í leikinn í dag. Ungmenni hafa átt aðstöðu í húsinu í aldarfjórðung en borgin seldi húsið fyrir rúmum fimm árum og síðan 2003 hafa nýir eigendur reynt að fá unga fólkið úr húsinu, án árangurs.
Mest lesið Símaupptökur úr Reykholtsmálinu: „Ekki fokking hreyfa þig eða ég mun sparka meira í þig“ Innlent Með stöðu sakbornings vegna banaslyss á Miklubraut Innlent Lúsmýið yrði alltaf verra en moskítóflugan Innlent Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Erlent Lögreglumál: Sátu fastir eftir að slökkt var á parísarhjólinu Innlent Hætta sölu til Japan: Hvalkjötið nýtt í framleiðslu bætiefnis Innlent Hugmyndin góð enda hvalkjöt mun járnríkara en nautakjöt Innlent Yfirheyra bandamenn sína í NATO Erlent Evrópuvaktin 2026: Þjóðin gengur að kjörborðinu Innlent Skilti í setrinu á ensku: „Hjartanlega sammála því að við eigum ekki að hafa þetta svona“ Innlent Fleiri fréttir Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Mangione játar sök: „Ég skaut herra Thompson og hann lést“ Biður hæstarétt um grænt ljós á veislusalinn „Óumflýjanlegt“ að sjúkdómar blossi aftur upp vegna aðgerða Bandaríkjanna Í basli með að finna nýjan sendiherra í Washington DC Trump skipar sjóhernum að notast aftur við gufu Gróður brennur beggja vegna Ermarsunds Sektaður fyrir að nota þokulúður til að vekja ísbjörn Sjá meira