Mikill erill hjá lögreglunni á Akureyri 16. júní 2007 10:30
Mikill erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt en þar fara nú fram bíladagar. Mikil fjöldi ferðamanna er í bænum og öll tjaldsvæði yfirfull. Lögregla hafði vart undan við að stöðva slagsmál og ólæti en ölæði gesta á svæðinu var mikið. Allar fangageymslur voru margsetnar vegna þessa og segir lögregla helgina fara af stað með svipuðum hætti og ef um verslunarmannahelgi væri að ræða. Um klukkan hálffjögur var lögregla kölluð til að tjaldstæðinu að Hömrum en þar hafði verið ráðist á mann. Þegar lögregla kom á staðinn til að ræða við árásarmanninn kom annar að og veittist að lögreglu. Mennirnir voru báðir handteknir og færðir í fangageymslur. Þá var lögregla kölluð að tjaldstæðinu á nýjan leik klukkustund síðar en þá höfðu brotist út hópslagsmál við innganginn. Ráðist var á gæslumann tjaldsvæðisins sem meiddist lítillega og annar var skallaður í andlit. Þar með var ekki öll nótt úti enn því um sexleytið brutust aftur út hópslagsmál á tjaldsvæðinu og voru tveir handteknir. Allt í allt var tilkynnt um 7 líkamsárásir á Akureyri í nótt. Auk þess þurfti lögregla að stöðva fjöldan allan af slagsmálum milli manna þó aðallega á tjaldsvæðinu að Hömrum, sinna útköllum vegna hávaða í heimahúsum og taka á móti fjölmörgum kvörtunum vegna svokallaðrar "burn-out" keppni sem að fór fram á Akureyrarvelli í gærkvöld þar sem kveikt var í hjólbörðum og var mest kvartað vegna reyks og slæmrar lyktar sem að fylgdi þessari keppni.
Mest lesið Skýr mynd komin á dularfullt andlát á Skjólbraut Innlent Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Innlent Gerður höfundur að fræðigrein sem hann skrifaði ekki Innlent Lögðu hald á tíu tonn af kókaíni nærri Kanaríeyjum Erlent Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Innlent Farið yfir skandalinn í Minnesota: Vopnvæðir fjársvik til að refsa „bláum ríkjum“ Erlent Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Innlent „Vorum bara með húsið í því ástandi sem það var“ Innlent Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Innlent Vance ætlar að sitja fundinn með Løkke og Rubio Erlent Fleiri fréttir Gæsluvarðhald Grikkjans framlengt Bein útsending: Málþing um aðlögun að loftslagsbreytingum „Vorum bara með húsið í því ástandi sem það var“ Skýr mynd komin á dularfullt andlát á Skjólbraut Umdeild mál á dagskrá og þeim fjölgar Dómur MDE staðfesti að réttarkerfið standi ekki með brotaþolum Engin fleiri mislingatilfelli greinst Borgin firrti sig allri ábyrgð á skemmunni Forsætisnefnd tekur við kvörtunum um ríkisendurskoðanda Ríkið brotlegt í einu máli en sýknað í öðru Gerður höfundur að fræðigrein sem hann skrifaði ekki Bein útsending: Fundur um fyrirhugaða atvinnustefnu Bóndinn í „miklu andlegu ójafnvægi“ þegar hann vanrækti nautgripi sína Vöktuðu rústirnar fram á nótt og fylgjast áfram með Líkamsárás og vinnuslys Boða til blaðamannafundar vegna stöðu barna Skammdegið víkur með hækkandi sól Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Þetta skýrir mögnuðu norðurljósin „Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta“ Gengið ágætlega að slökkva og kalla fólk til baka Kvöldfréttir: Í beinni frá Gufunesi Vaktin: Náð tökum á stórbrunanum í Gufunesi Reyna aftur að fá Helga Bjart á bak við lás og slá Niðurstöður samræmdra prófa í vor verði opinberaðar Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Mátti skjóta hund vegna viðbúins fjárhagslegs tjóns Loka lauginni vegna veðurs Biðlar til ráðherra og segir upphrópanir ekki hjálpa Sjá meira