Vatnsryksugur eða Herbalife? 12. júlí 2007 06:00 Ég las fyrir nokkru síðan í Fréttablaðinu um svokallaðar „dellur“ Íslendinga í gegnum tíðina. Þar var minnst á Herbalife-vörurnar, gefið í skyn að þeir sem álpuðust til að reyna að pranga Herbalife inn á fólk hér um árið gangi nú húsa á milli og selji vatnsryksugur. Sem betur fer hefur Íslendingurinn ekki farið varhluta af heilsubyltingu hins vestræna heims og æ fleiri hugsa betur um líkama sinn og hlúa betur að heilsu sinni. Sem dreifingaraðili Herbalife hitti ég fólk sem þiggur fegins hendi hjálp við þeim vandamálum sem nútímamaðurinn stendur frammi fyrir á tímum skyndilausna. Fólk sem þjáist af orkuleysi, offitu, meltingartruflunum, svefnleysi eða sykurlöngun, svo fátt eitt sé nefnt. Mannslíkaminn hefur á mörgum milljónum ára þróast í það sem hann er í dag og er illa í stakk búinn til að takast á við matvælaþróun síðustu ára. Svo langri þróun verður ekki snúið við á einni öld. Nútíminn færir okkur skyndimat og unnin matvæli á silfurfati, fæðuval sem samanstendur af „tómum“ hitaeiningum og gagnast líkama okkar ekki eins vel og þau matvæli sem menn neyttu áður. Íslendingar hafa ekki farið varhluta af þróun í matvælaiðnaði nútímans. Það er víst að Íslendingur sem var uppi um aldamótin 1900 borðaði meira af próteini og omega-fitusýrum heldur en nútíma Íslendingur. Mannslíkaminn hefur á síðustu öldum vanist að fá ekki mat hvar sem er og hvenær sem er, hann er í eðli sínu ginkeyptur fyrir feitum og orkuríkum mat. Hann er auk þess líffræðilega hannaður til að langa í slíkan mat, og til að breyta allri umframorku í fitubirgðir sem geyma á til „mögru“ áranna. Varla mikil von til að við á 21. öldinni upplifum slíkt í bráð. Mannskepnan á árum áður vann erfiðisvinnu, átti ekki rafknúin farartæki, flísfatnað eða upphituð híbýli, og eyddi þar af leiðandi öllum umframhitaeiningum og fitubirgðum líkamans sjálfkrafa – gjörólíkt þeim raunveruleika sem við búum við í dag. Sjálf get ég fullyrt að þrátt fyrir að vera komin yfir fertugt hefur mér aldrei í mínu lífi liðið betur en í dag. Ég veit núna muninn á því að innbyrða alla daga vikunnar öll þau nauðsynlegu næringarefni og vítamín sem líkaminn þarf á að halda til að geta starfað eðlilega í starfi og leik, og því að geta varla tekist á við allt sem ég þurfti að gera í mínu krefjandi starfi - hvað þá að eiga afgangs orku til að gera allt það sem mig langaði til að gera þess utan. Ég hef enn ekki hitt nokkurn einstakling sem vill ekki líða vel, vera orkumikill, heilsuhraustur, í góðu formi, unglegur og eiga alla möguleika á góðu og heilbrigðu lífi til dauðadags. Af óbilandi hugsjón leitumst við dreifingaraðilar Herbalife við að hjálpa fólki eins og þér til að finna leið til betra lífs. Það þekkja Íslendingar sem nota ytri og innri næringu Herbalife sér til heilsubótar. Vatnsryksugur eru öflug heimilistæki en þær verða viðskiptavinir mínir að kaupa annars staðar en hjá mér. Höfundur er dreifingaraðili Herbalife. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Mælum fyrst – hækkum svo Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Þegar skuldir færa völdin til Brussel Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Er ekki rjóminn bestur? Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ráðherra Helgi Felixson skrifar Skoðun Lengi býr að fyrstu gerð Sigurður Páll Jónsson skrifar Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar Skoðun Hvað einkennir góðan vinnustað? Ingunn Eir Andrésdóttir skrifar Skoðun Ákall vegna athugasemdakerfis Guðrún Elísa Friðbjargardóttir Sævarsdóttir skrifar Skoðun Pútín, Kalíngrad og Ísland Arnór Sigurjónsson skrifar Skoðun SÁÁ Ingibergur Þorkelsson skrifar Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar Skoðun Guð eða gæðavísar? Hvað er að gerast innan SÁÁ? Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Kæru borgarfulltrúar Haraldur Þorgeirsson,Ásta Kristrún Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar Skoðun Sonur minn fær ekki 10. bekk aftur Ásdís Björg Gestsdóttir skrifar Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Streita og kulnun Dávur í Dali skrifar Skoðun Innantómt hjóm við hátíðlegt tækifæri? Guja Sandholt skrifar Skoðun Mildum höggið Ingibjörg Isaksen skrifar Skoðun Skattahækkun á baðlón þarf að meta út frá heildaráhrifum Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Stórútgerðin fær svigrúm, smábátar fá skuldabagga Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Ljótt er ef satt er Bryndís Víglundsdóttir skrifar Skoðun Mælistika lífsins Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun „... ekki alltaf sammála um allt“ ? Álfheiður Ingadóttir skrifar Skoðun Hvað gerðist áður en hjúkrunarheimilið varð lausnin? Rannveig Tenchi Ernudóttir skrifar Skoðun Mikið uppnám fyrir lítið innihald Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Er skynjari á vaktinni í bústaðnum? Ágúst Mogensen skrifar Skoðun Veggjöld eru viðurstyggð — refsistefna ríkisstjórnar Einar Steingrímsson skrifar Sjá meira
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun
Skoðun Áhrif framþróunar í gervigreind á landslag netöryggisveikleika Arnar Freyr Guðmundsson skrifar
Skoðun Það er svo margt gott að gerast í skólunum – Skrifað á alþjóðadegi kennara Dagný Gísladóttir skrifar
Skoðun Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir skrifar
Skoðun Hver eru rökin fyrir margföldum áfengissköttum á við nágrannalöndin? Ólafur Stephensen skrifar
Skoðun Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar
Hver kennir okkur að hugsa? Sigrún Ólafsdóttir,Rannveig Björk Þorkelsdóttir,Ingibjörg Ágústsdóttir Skoðun
Af hverju á fötlun mín að þýða minna frelsi á mínu eigin heimili? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir Skoðun
Hugleiðingar um nútímasamfélag og hvernig það birtist í kennslustofunni Sigrún Fjóla Hilmarsdóttir Skoðun