Handbolti

GOG náði jöfnu gegn Portland

Snorri Steinn og félagar náðu jafntefli við spænska stórliðið í kvöld
Snorri Steinn og félagar náðu jafntefli við spænska stórliðið í kvöld

Tveir leikir fóru fram í Meistaradeildinni í handbolta í kvöld. Íslendingalið GOG Svendborg frá Danmörku náði 28-28 jafntefli við stórlið Portland San Antonio í annað sinn í riðlakeppninni og Ciudad Real lagði Flensburg frá Þýskalandi 29-24 og tryggði sér toppsætið í G-riðli.

GOG hefur nú hlotið 6 stig í D-riðlinum, tveimur minna en San Antonio, og því eru mjög góðar líkur á að liðið komist áfram í næstu umferð. Bregenz og Tatran Presov hafa 2 stig í 3.-4. sæti.

Í G-riðlinum hefur Ciudad hlotið 10 stig á toppnum og Flensburg er í öðru sæti með 4 stig. Drammen og Lubin hafa 2 stig í 3.-4. sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×