Baugur staðfestir orðróm um áhuga á Moss Bros 10. desember 2007 17:59 Jón Ásgeir Jóhannesson
Baugur Group sendi í dag tilkynningu til kauphallarinnar í London þar sem félagið staðfestir þann orðróm að félagið sé að kanna möguleika sína á því að taka yfir Moss Bros Group með hliðsjón af óbeinum eignarhlut sínum í félaginu. Þetta kemur fram í Hálf-fimm fréttum Kaupþings. Baugur á í félagi við FL Group og Kevin Stanford um 28,5% hlut í Moss Bros Group . Hinsvegar er tekið fram að þessi tilkynning sé þó á engan hátt yfirlýsing um einlægan ásetning félagsins til þess að gera tilboð í allt hlutafé félagsins og óvíst að nokkurt tilboð verði gert. Rekstur Moss Bros hefur gengið illa Moss Bros Group á og rekur um 150 búðir vítt og breitt um Bretland sem selja einkum fatnað undir vörumerkjunum Hugo Boss og Canali. Rekstur félagsins hefur ekki gengið sem skyldi á þessu ári og nú síðast þann 5. desember sendi félagið frá sér afkomuviðvörun þar sem fram kom að félagið ætti ekki von á því að ná þeirri afkomu sem markaðsaðilar væru almennt að spá fyrir félagið. Sala félagsins á síðari hluta ársins fram til 8. desember hefur verið 1,5% minni en á sama tíma í fyrra. Í framhaldi af þessari afkomuviðvörun í síðustu viku féllu bréf félagsins í kauphöllinni í London um 13% eða niður í 33 pens á hlut. Gengið hefur hækkað um 22,15% í dag Í dag hefur gengi félagsins hækkað um 22,15% eða úr 37,25 pensum á hlut upp í 45,5 pens á hlut og er markaðsvirði félagsins við lokun markaðar um 42,5 milljónir punda eða (5,4 milljarðar króna). Gengi bréfa félagsins hefur lækkað mikið það sem af er ári en hæst fór gengið í 77,5 pens á hlut (í byrjun árs) en lægst í 33 pens nú í síðustu viku í kjölfar afkomuviðvörunar.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira