Góð sárabót fyrir Dallas 21. janúar 2007 21:10 Stackhouse var heitur í fjórða leikhlutanum í kvöld AFP
Einum leik er lokið í NBA í dag en hér var á ferðinni einvígi liðanna sem börðust um meistaratitilinn í fyrra. Þetta var fyrsti leikur liðanna síðan Miami tryggði sér titilinn í sumar, en Dallas kom fram hefndum með góðum sigri á útivelli 99-93 þar sem Jerry Stackhouse var hetja gestanna og skoraði 16 stig í fjórða leikhlutanum. Dallas hafði þægilegt forskot lengst af í leiknum, en Dwyane Wade fór fyrir liði heimamanna þegar það gerði áhlaup í fjórða leikhluta og náði að jafna leikinn. Jerry Stackhouse skoraði 16 af 23 stigum sínum í fjórða leikhlutanum, Dirk Nowitzki skoraði 22 stig og Josh Howard 25. Wade var stigahæstur í liði heimamanna með 31 stig, en klikkaði á þristi þegar 5,8 sekúndur voru eftir af leiknum sem hefði geta jafnað fyrir Miami. Liðið er enn án Shaquille O´Neal sem hefur misst úr 34 leiki í vetur, en hann er nú óðum að braggast og stefnir á að spila á ný fljótlega. Miami komst aldrei yfir í leiknum og Dallas hefur nú unnið 29 leiki og tapað aðeins einum þegar það heldur andstæðingum sínum undir 100 stigum. Leikur kvöldsins á NBA TV verður viðureign Phoenix og Minnesota þar sem gestirnir verða án Kevin Garnett og Ricky Davis, sem báðir verða í leikbanni. Það má því mikið vera ef Phoenix vinnur ekki 13. leik sinn í röð, en liðið hefur unnið 28 af síðustu 30 leikjum sínum í deildinni og hefur verið í sérflokki ásamt Dallas á fyrri helmingi leiktíðar.
NBA Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Er skrefareglan dauð í NBA? Bestu byrjanir táninga í körfunni: Gerði betur en Tryggvi og Jón Arnór Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Uppgjörið: Grindavík-Keflavík 89-75 | Grindavíkurkonur á skriði og eru taplausar á toppnum Reiður LeBron lét stuðningsmenn Knicks heyra það Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Lagði meistarana í fyrsta leik með nýju liði Margar fengu að skína í stórsigri Íslandsmeistaranna Uppgjörið: Valur - Haukar 85-90 | Hafnfirðingar aftur á sigurbraut Þriðji Stjörnusigurinn í röð þrátt fyrir stórleik þeirrar argentínsku Elvar Már gaf ellefu stoðsendingar í Evrópubikarnum Missir af öðru tímabilinu í röð vegna meiðsla Luka Gasic frá í nokkrar vikur „Þetta er karfa tímabilsins“ Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Sjá meira