Frábær sigur hjá Valsmönnum 11. nóvember 2007 18:58 Mynd/Völundur
Valsmann unnu í kvöld fyrsta leik sinn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar þegar liðið gerði sér lítið fyrir og lagði stórlið Celje Lasko frá Slóveníu 29-28 í Vodafone höllinni. Valsmenn höfðu forystu í hálfleik 15-14 og voru skrefinu á undan allan síðari hálfleikinn, en lokamínúturnar voru gríðarlega spennandi þar sem Valsararnir náðu að hanga á eins marks forskoti þrátt fyrir að vera manni færri. Þar munaði mikið um markvörslu Pálmars Péturssonar, sem varði vítakast og skot utan af velli á síðustu mínútunni. Valsmenn áttu frábæran leik í dag og var Óskar Bjarni þjálfari vitanlega í skýjunum eftir sigurinn þegar Þorsteinn Gunnarsson á Sýn náði tali af honum eftir leikinn. "Þetta var lyginn líkast. Við vorum að vinna eitt sterkasta lið Evrópu. Við náðum að stöðva hjá þeim hraðaupphlaupin og strákarnir voru allir að spila vel í dag. Ég er svo stoltur af strákunum að ég á ekki orð og þetta er stór sigur fyrir íslenskan handbolta. Þetta er sætasti sigur minn á ferlinum og ég held að þetta sé stærsti sigur Vals síðan mulningsvélin var og hét," sagði Óskar, en til marks um styrk liðsins má geta þess að liðið varð Evrópumeistari leiktíðina 2003-04. Valsmenn hlutu þarna sín fyrstu stig í F-riðlinum þar sem Gummersbach er á toppnum með 7 stig, Veszprém hefur 4 stig, Celje 3 og Valur 2. Nánari umfjöllun um leikinn kemur hér á vefinn í fyrramálið.
Mest lesið Benedikt birtir mynd frá slysstað Handbolti Til átaka kom eftir stórleikinn á Anfield Enski boltinn Senuþjófurinn á Höfn slær í gegn: „Búin að missa humarinn og jöklarnir að bráðna“ Körfubolti Tveir leikmenn Arsenal meiddust eftir leik: „Aldrei gerst áður“ Enski boltinn Drungilas lengi frá: „Þetta er drullufúlt“ Körfubolti Í sjokki eftir „stjörnugalna“ frammistöðu: „Eins og hjá byrjendum“ Körfubolti Með áskorun fyrir sjóðheitan Andra Lucas Enski boltinn Bakgarðsáskorunin: Pissustaðurinn reyndist vera beint fyrir framan myndavélina Sport Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Langmarkahæst í Olís-deildinni en áfram úti í kuldanum „Þeir eiga allt þetta hrós fyllilega skilið“ Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Dýrmætur sigur HK-inga Ómar markahæstur í öruggum sigri FH hélt Selfossi á botninum Sættast eftir lætin á Ísafirði og allt dregið til baka Sjá meira