Ungverjar skelltu Dönum 20. janúar 2007 20:54 Ungverjar skelltu Dönum mjög óvænt í kvöld, en margir tippa á að Danir muni ná mjög langt í keppninni AFP
Ellefu leikir fóru fram í dag á öðrum keppnisdegi HM í handbolta í Þýskalandi. Íslenska liðið vann auðveldan sigur á því ástralska í dag og í kvöld gerðu Ungverjar sér lítið fyrir og lögðu Dani 30-29 í E-riðli. Hér fyrir neðan eru úrslit allra leikja í dag. Danska liðið hafði forystu nær allan leikinn í kvöld og hafði yfir 28-24 þegar skammt var til leiksloka. Ótrúlegur klaufagangur Dana og meistaraleg markvarsla ungverska markvarðarins kostuðu liðið sigurinn. Gergö Iváncsik skoraði 7 mörk fyrir Ungverja í leiknum en Lars Christiansen sem leikur með Flensburg í Þýskalandi skoraði 10 fyrir Dani. Þetta var æsilegur endir á öðrum mótsdegi, en úrslit í öðrum leikjum voru meira eftir bókinni. Í hinni viðureigninni í E-riðli unnu svo Norðmenn auðveldan skyldusigur á Angóla 41-13 þar sem Frank Loke skoraði 9 mörk fyrir norska liðið og Alexander Buchmann 8. Í A-riðli vann Slóvenía 35-21 sigur á Grænlandi og Túnis vann auðveldan sigur á Kúvæt 34-23. Í B-riðli okkar Íslendinga áttust við Frakkar og Úkraínumenn og þar sigruðu Frakkar örugglega 32-21 eins og áður hefur verið greint frá á Vísi. Í C-riðli unnu Þjóðverjar sigur á Brasilíumönnum í gær 27-22 og í dag lögðu Pólverjar Argentínumenn auðveldlega 29-15. Í D-riðli burstuðu Tékkar lið Katar 37-24 og þá unnu Spánverjar sigur á Egyptum 33-29 þar sem Davis Camara skoraði 7 mörk fyrir heimsmeistarana og Urios Fonseca 5, en Ahmed El Ahmar skoraði 11 og Hussein Ali Zaky skoraði 8 fyrir Egypta. Í F-riðli gerðu svo Rússar og Suður-Kóreumenn jafntefli 32-32 þar sem Alexej Rastwortsew úr liði Medwedi Tschechow skoraði 7 mörk fyrir Rússa en Chi-Hyo Cho skoraði 8 mörk fyrir Kóreu. Króatía burstaði svo Marokkó 35-22 þar sem Vori, Vukovic, Zrnic og Sulic skoruðu 4 mörk hver fyrir Króata.
Mest lesið „Stelpurnar vissu ekki einu sinni af þessu“ Fótbolti Uppsagnir hjá Arsenal Enski boltinn KSÍ fái rúma þrjá milljarða frá FIFA Fótbolti Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Þorði ekki á Instagram eftir leikinn Fótbolti Rooney baunar á Ronaldo: „Allt rangt við þetta“ Fótbolti Óljós skilaboð vekja upp spurningar: „Ég er orðlaus“ Enski boltinn Lét gamminn geisa og fær að heyra það Enski boltinn Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Íslenski boltinn Fleiri fréttir Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Bæði leikmönnum og áhorfendum í höllinni gert að víkja í miðjum leik „Náðum ekki að klukka þá framan af“ Náðu að vinna sterkt spænskt lið FH - Limoges 33-46 | FH-ingar grófu sér of djúpa holu í fyrri hálfleik Slakur fyrri hálfleikur varð Val að falli Sjá meira