Viðskipti innlent

Samskip kaupa ICEPAK

Samskip hafa keypt frystivöru- og flutningsmiðlunina ICEPAK sem er með víðtæka alþjóðlega starfsemi og skrifstofur á Bretlandseyjum, í Bandaríkjunum og Ástralíu.

„Flutningastarfsemi ICEPAK, og sú víðtæka þekking og reynsla sem starfsfólk og stjórnendur fyrirtækisins búa yfir, er mikilvæg viðbót við ört vaxandi þjónustu Samskipa í kæli- og frystivöruflutningum og styrkir mjög stöðu okkar á stórum markaðssvæðum, sérstaklega í Bandaríkjunum, Ástralíu, Asíu, Suður-Ameríku og á Bretlandseyjum," segir Peder Winther, framkvæmdastjóri frystivöruflutningasviðs Samskipa í tilkynningu um kaupin.

ICEPAK var sett á laggirnar fyrir 15 árum til að þjóna vaxandi kröfum hins alþjóðlega matvælamarkaðar um heildarlausnir í kæli- og frystiflutningum, frá dyrum seljanda að dyrum kaupanda. Á Bretlandseyjum er félagið með skrifstofu í Basildon, rétt austan við London, þrjár skrifstofur eru í Bandaríkjunum; í Merchantville, New Jersey og Seattle, og ein í Sydney í Ástralíu.

 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×