Sprengt í Breska sendiráðinu í Teheran 1. apríl 2007 12:54 Frá mótmælum fyrir utan utanríkisráðuneyti Írana fyrir helgina. MYND/AFP
Nokkrar sprengingar heyrðust í sendiráði Bretlands í Teheran nú rétt í þessu. Reuters fréttastofan greinir frá því að vitni hafi heyrt nokkrar minni sprengingar og séð reyk inn í sendiráðsbyggingunni. Mómæli voru í gangi við sendiráðið vegna sjóliðadeilunnar þegar sprengjurnar sprungu. Eitt vitni sagði átta heimagerðar sprengjur hafa sprungið. Sky fréttastofan greinir frá því að um bensínsprengjur hafi verið að ræða. Ekki er talið að meiðsl hafi orðið á fólki og skemmdir eru taldar óverulegar. Á annað hundrað manns mótmæltu við sendiráðið og sumir hentu steinum og heimagerðum sprengjum að byggingunni. Tim Marshall fréttaritari Sky segir um viðvörun að ræða. Tuttugu manns hafi tekið þátt í mótmælum vegna sjóliðadeilunnar á fimmtudag, nú væru þeir á annað hundrað. Næst yrðu þeir kannski þúsundir. Bush Bandaríkjaforseti fordæmdi Írana fyrir afstöðu þeirra í sjóliðadeilunni í gær. Hann sagði hegðun þeirra óafsakanlega og sagðist styðja tilraunir Breta til að leysa deiluna á friðsamlegan hátt. Hann sagði engan vafa leika á að skip sjóliðanna hefði verið á siglingu í íraskri lögsögu þegar það var stöðvað. Í gær fullyrti Mahmoud Ahmadinejad Íransforseti hið gagnstæða og sagði að bresk stjórnvöld gengju fram af hroka og eigingirni. Enginn vafi léki á að breska innrásarliðið - eins og hann orðaði það - hefði ætt inn í íranska landhelgi.
Fréttir Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Innlent Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Innlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Erlent Fleiri fréttir Gull að leysa kókaín af hólmi Stolnu málverkin fundust á bak við vegg Henda mat eftir tölvuárás hitaði kæla upp í fimmtíu gráður Gerðu húsleit hjá þingkonu sem Trump á sökótt við Verðlaunaðir fyrir að smíða hagstjórnartæki samtímans Skaut konu sína, börn og barnabörn Sektaður fyrir að geyma lík foreldranna í frysti í áratugi Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Tígrisdýrið verður ekki aflífað Rússar ráðist á orkuinnviði þrátt fyrir yfirlýsingu Trumps Fær aukadag til stjórnarmyndunar Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Leó páfi á leið í aðgerð eftir að hnútur fannst á lunga Vara við því að fara um flugvelli í Sádí-Arabíu Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Vill nýjan Úkraínuforseta Lést eftir árás tígrisdýrs í dýragarði Níu létust eftir skotárás Þrjú börn meðal fimmtán látinna í árás á íbúðarblokkir Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Þúsundum gert að yfirgefa heimili sín vegna Isaias Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Trump samdi við Pútín um dísel Vance biðlar til ungra reiðra manna Sjá meira