Handbolti

Flensburg hefur yfir gegn Ciudad Real

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexander Petersson í leik gegn Kiel á dögunum.
Alexander Petersson í leik gegn Kiel á dögunum. Nordic Photos / Bongarts

Nú stendur yfir stórleikur Flensburg og Ciudad Real í Meistaradeild Evrópu en þarna eigast við tvö af bestu liðum heims.

Um er að ræða sannkallaðan Íslendingaslag en í hálfleik hefur Flensburg forystuna, 14-13.

Flensburg hefur verið skrefinu á undan allan hálfleikinn en Ciudad komst einu sinni yfir, þegar Ólafur Stefánsson skoraði tvisvar í röð og kom Ciudad í 11-10.

Einar Hólmgeirsson hefur óvænt fengið tækifærið í liði Flensburg og átti afar sterka innkomu í fyrri hálfleikinn. Hann hefur skorað tvö mörk.

Alexander Petersson hefur spilað stærsta hluta leiksins til þessa en fremur lítið hefur farið fyrir honum til þessa.

Vísir fylgist að sjálfsögðu áfram með leiknum.

Sjá einnig: Pirrandi hvað ég fæ fá tækifæri

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×