FL Group gerir ekki yfirtökutilboð í Inspired 19. desember 2007 11:50 MYND/Anton
FL Group hefur ákveðið að halda ekki áfram viðræðum við breska hugbúnaðarfyrirtækið Inspired Gaming Group um yfirtöku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu. Það hefur frá því í haust átt í viðræðum við Inspired um hugsanlega yfirtöku en segir að í ljósi núverandi markaðsaðstæðna hafi verið ákveðið að gera það ekki að svo stöddu. FL Group á nú um 19 prósent í félaginu og hyggst áfrfam vinna með stjórn Inspired að vexti þess. Samkvæmt grein í breskum yfirtökulögum mun FL Group ekki vera heimilt að gera yfirtökutilboð í félagið á næstu sex mánuðum nema að verulegar breytingar verði á aðstæðum er tengjast Inspired og tilboði FL Group. Inspired er með leiðandi stöðu í heiminum á sviði hugbúnaðarlausna fyrir tölvutengdar leikjavélar og hefur markaðsráðandi stöðu í leikjavélum fyrir afþreyingariðnaðinn í Bretlandi eftir því sem segir í tilkynningu FL Group Miklar breytingar hafa orðið á FL Group að undanförnu í kjölfar slakra afkomutalna í lok þriðja ársfjórðungs. Hlutafé í félaginu var aukið um 64 milljarða fyrr í mánuðinum og Baugur varð stærsti hluthafinn í stað Hannesar Smárasonar. Félagið hefur rifað segli á flugrekstrarmarkaði og hefur selt nánast allan sinn hlut í AMR, móðurfélagi bandaríska flugfélagsins American Airlines. Þá tilkynnti félagið í morgun að það hefði selt 11,7 prósent eða nærri helming hlutar síns í finnska flugfélaginu Finnair.
Mest lesið Rukkuð um sex þúsund kall eftir lagningu á Snæfellsnesi Neytendur „Það er hægt að byrja að fjárfesta með fimm þúsund krónum á mánuði“ Atvinnulíf Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf Bretland aftur inn í Reiki í Evrópu hjá Sýn og Símanum Neytendur „Það er draumur að vera á BMW og keyra fram á nótt” Samstarf „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Viðskipti innlent Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Kynntu nýja útgáfu ChatGPT: „Þetta er eins og að tala við sérfræðing“ Viðskipti erlent Fylgdu ekki fyrirmælum um að skýra skrópgjaldið betur og fá sekt Neytendur Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Ekkert Viking eða Gull“ á nýjum stað í B5 Segir ofboðslegan undirliggjandi þrýsting á fasteignamarkaði Reikna með að skila hagnaði á næsta ári Frá Gamma til Arctica og nú Seðlabankans Atvinnuleysi 2,8 prósent í júní Trump-tollarnir hafa tekið gildi Ísland klemmist á milli í alþjóðlegu tollastríði Vonbrigði með makrílinn en síldin og loðnan veki von Ráðin framkvæmdastjóri Magio – viðburðasmiðju Trúa varla að tollahækkanirnar séu að skella á Alaska Airlines hefur daglegt flug til Keflavíkur næsta sumar Vefur og app Íslandsbanka lágu niðri Tímabundin dreifing á sjónvarpsefni Sýnar hjá Símanum Hækkun tolla eins og þruma úr heiðskíru lofti Forstjóraskipti hjá Ice-Group Kísiltollar gætu vel endað fyrir gerðardómi Hvalur hf. stefnir íslenska ríkinu Arion hagnaðist um tíu milljarða á öðrum fjórðungi Ferðum Play til London, Parísar og Berlínar „sjálfhætt“ Festi hagnast umfram væntingar Þota Play komin úr viðgerð eftir skemmdir vegna hagléls Evrópa verði upp á Kína komin verði af tollunum Sigurður viðskiptastjóri innviðalausna hjá Ofar Hagnaður minnkar um 38 prósent og arðgreiðsla óákveðin Funda með ráðherra vegna tollanna: „Ég ætla ekki að setjast í neitt dómarasæti“ Á ég að greiða inn á lánið eða spara? Loksins, mathöllin og fleiri staðir fá nýja rekstraraðila „Við erum að bæta við atvinnustoð í samfélaginu“ Kristján og Leó kaupa Landsbankahúsið á tæpa þrjá milljarða Sjómönnum sagt upp: Skipulagsbreytingar vegna veiðigjalda Sjá meira