Gummersbach sigurvegari riðilsins eftir stórsigur á Val Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. nóvember 2007 15:48 Úr fyrri leik Vals og Gummersbach í Meistaradeildinni. Mynd/Eyþór
Gummersbach er nú öruggur sigurvegari F-riðils Meistaradeildar Evrópu eftir tólf marka sigur á Val í dag, 34-22. Leikurinn verður sýndur á Eurosport 2 í kvöld klukkan 20.00. Gummersbach er nú komið með níu stig í riðlinum og getur ekkert lið náð því að stigum. Valur er með tvö stig í neðsta sæti. Valsmenn skoruðu þó fyrsta markið í leiknum og komst svo í 3-1. Gummersbach svaraði með því að skora fjögur mörk í röð og sigla svo hægt og rólega fram úr Valsmönnum. Staðan í hálfleik var 16-10, Gummersbach í vil. Valsmenn skoruðu fyrstu þrjú mörkin í síðari hálfleik en Gummersbach þau fimm næstu. Þeir þýsku gáfu ekkert eftir og héldu uppteknum hætti allt til leiksloka. Arnór Þór Gunnarsson var markahæstur Valsmanna með sjö mörk og Hjalti Þór Pálmason skoraði fjögur. Róbert Gunnarsson skoraði sex mörk fyrir Gummersbach en Sverre Jakobsson komst ekki á blað. Guðjón Valur Sigurðsson lék ekki með Gummersbach vegna meiðsla. Síðar í dag mætast hin liðin í riðlinum, KC Veszprém frá Ungverjalandi og Celje Lasko frá Slóveníu. Sigri Ungverjarnir í leiknum, sem fer fram í Slóveníu, eru þeir komnir áfram í næstu umferð Meistaradeildarinnar ásamt Gummersbach. Ef heimamenn standa hins vegar uppi sem sigurvegarar mun Celje Lasko þurfa að vinna Gummersbach í lokaumferðinni, svo lengi sem Veszprém tapi ekki fyrir Val í Vodafone-höllinni á fimmtudaginn kemur. Mörk Valsmanna: Arnór Þór Gunnarsson 7, Hjalti Þór Pálmason 4, Ernir Hrafn Arnarson 3, Elvar Friðriksson 3, Baldvin Þorsteinsson 2, Ingvar Árnason 1, Sigfús Páll Sigfússon 1, Ægir Hrafn Jónsson 1.
Mest lesið Gunnlaugur Árni fyrstur karla til að tryggja sig inn á U.S. Open Golf Bjargráður bjargaði báðum: „Í mínu tilfelli var þetta ekki þess virði“ Fótbolti Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Körfubolti Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Íslenski boltinn Baulað á Trump í New York Körfubolti „Engar tilviljanir í lífinu og sérstaklega ekki í íþróttum“ Fótbolti KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Körfubolti „Hlakka mikið til að ná fleiri áföngum fyrir Ísland“ Golf Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Íslenski boltinn Markvörður í slagsmálum rétt fyrir vítaspyrnukeppni Fótbolti Fleiri fréttir Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Sjá meira