Áhersla Landsbanka af TM yfir á Vörð Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. nóvember 2007 06:15 Guðmundur Jóhann Jónsson er framkvæmdastjóri tryggingafélagsins Varðar, sem Landsbankinn á stóran hlut í. Markaðurinn/Völundur
Landsbanki Íslands býður viðskiptavinum um þessar mundir að flytja tryggingar yfir í Vörð tryggingar ehf. Áður var bankinn með tilboðskjör tengd tryggingum Tryggingamiðstöðvarinnar. Breytt landslag í eignarhaldi tryggingafélaga er rót þessara breytinga, en FL Group, stærsti hluthafi Glitnis, keypti nýverið Tryggingamiðstöðina, þar sem Landsbankinn átti stóran hlut. Í nóvember í fyrra keypti hins vegar eignarhaldsfélag SP-Fjármögnunar, Landsbankans og Byrs sparisjóðs Vörð, sem þá hét Vörður Íslandstrygging. Nafni félagsins var breytt í sumar. Guðmundur Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri Varðar, segir að frá í júní hafi verið keyrt upp sölusamstarf við Landsbankann og telur ljóst að félagið taki smám saman við sem aðaltryggingafélag bankans. „Við höfum verið litli aðilinn á markaðnum og erum svo sem enn, en við ætlum að breyta því þannig að í stað þess að talað verði um félögin þrjú viljum við að talað verði um félögin fjögur.“ Guðmundur segir fólk ekki jafn fastheldið á tryggingafélög og áður og telur að það láti kjör fremur ráða viðskiptunum. „Við finnum að stærri hópur er tilbúinn að skoða sín mál,“ segir hann og telur tengsl milli banka og einstakra tryggingafélaga jafnframt hafa meira að segja en áður. „Ef Landsbankinn telur sig geta boðið sínum viðskiptavinum hagstæðari kjör í samstarfi við okkur en bjóðast annars staðar kann það að hafa nokkuð mikið að segja.“ Samkvæmt heimildum Markaðarins er enn verið að meta stöðuna hjá Tryggingamiðstöðinni, enda tiltölulega skammt síðan þar urðu breytingar á eignarhaldi og yfirstjórn. Ljóst er þó að meira hangir á spýtunni en einstaklingsviðskipti viðskiptavina bankanna, því bankarnir kaupa margvíslega þjónustu af þeim tryggingafélögum sem þeir tengjast, eða hafa samið við. Þannig hefur Tryggingamiðstöðin til þessa annast kreditkortatryggingar fyrir Landsbanka Íslands, en ekki ólíklegt að viðskipti sem slík færist yfir til Varðar. Kaup FL Group á Tryggingamiðstöðinni eru nú til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu, en um mánaðamótin síðustu réði félagið yfir meira en 97 prósentum hlutafjár í TM og hafði gert tilboð í útistandandi hluti. Hvorki náðist í Sigurð Viðarsson, forstjóra TM, né Gunnar Karl Guðmundsson, stjórnarformann félagsins.
Mest lesið Svona kemur þú í veg fyrir tvær kröfur vegna kílómetragjalds Neytendur Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Viðskipti innlent Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Viðskipti innlent Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Viðskipti innlent Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Viðskipti innlent Innkalla vegna aðskotahlutar Neytendur Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Viðskipti innlent Feðgin í Firðinum: „Pabbi er besti vinur minn“ Atvinnulíf Staðalímyndir meira vandamál en kynslóðamunur Atvinnulíf Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Bætast í hóp samstarfsfélaga Icelandair Flugmenn og Icelandair funda á morgun Sagan full af dæmum þar sem mikilvæg félög hverfa Forstjóri SPAR klippti á borðann í Hafnarfirði Icelandair tekur litáíska vél á leigu Kjartan Smári hættur hjá Íslandssjóðum Hættu við samrunann vegna afskipta Samkeppniseftirlitsins Kvika sendi starfsmönnum kalda kveðju Máli Alcoa gegn Eimskip vísað frá Icelandair hefur flug til Qaqortoq Körfuboltakempa nýr útibússtjóri á Króknum Flugvirkjar skora á Icelandair að hverfa frá áformum sínum Hreyfing í viðræðum Icelandair og flugmanna Samþykktu tíu milljarða arðgreiðslu sama dag og greint var frá uppsögnum Dæmi um að tvö hundruð manns bítist um auglýst starf Tóku rök félagsins til greina og tvöfölduðu svo sektina Loftslagsgjöldin orðin milljarðakostnaður í þungum rekstri Icelandair Alvotech rauk upp eftir tíðindi í morgun Turninn á Lækjartorgi fær nýtt líf Kanónur ætla að opna Kaffi Kjötborg Stærsti hluti landbúnaðarlands ekki í virkri notkun Uppsagnir hjá Kviku banka Luku fimm hagræðingaraðgerðum á einu ári Varaseðlabankastjóri segir fólki að grafa upp plastgreiðslukortin Staða Icelandair: „Þetta er hinn kaldi raunveruleiki“ Rauður dagur í Kauphöllinni Sjá meira