Fjármálastofnanir forðast að lána yfir áramótin 4. desember 2007 12:12
Aðgengi að lausafé hefur þrengst til muna á fjármálamörkuðum undanfarið og virðast fjármálastofnanir forðast eins og heitan eldinn að lána yfir næstkomandi áramót. GFjallað er um málið í Morgunkorni greiningar Glitnis og þar segir að útlánsvextir til eins mánaðar snarhækkuðu á millibankamörkuðum í mörgum helstu mynta heims á fimmtudag, en frá og með þeim degi verða eins mánaðar útlán ekki endurgreidd fyrr en á nýju ári. Hækkunin er þó ekki einskorðuð við mánaðarútlán, heldur hafa skammtímavextir almennt hækkað verulega á fyrstu dögum desembermánaðar. Hækkun skammtímavaxta í aðdraganda áramóta er þekkt fyrirbæri á fjármálamörkuðum, en hreyfingarnar nú eru mun stærri en sést hefur undanfarin ár. Munur skammtímavaxta og stýrivaxta í bresku pundi er nú álíka mikill og þegar áhlaupið á Northern Rock stóð sem hæst. Í evru og bandarískum dollar er álagið hins vegar hærra nú en verið hefur síðan lausafjárkreppan hófst að áliðnu sumri. Seðlabankar hafa brugðist við hækkandi álagi með auknu framboði peningamagns og Seðlabanki Evrópu bætti um betur og tilkynnti að skammtímaútlán til fjármálastofnana 19. desember næstkomandi yrðu til hálfs mánaðar í stað venjulegra vikulána til þess að auðvelda lántökur yfir áramót. Þessar aðgerðir hafa þó enn ekki megnað að slá á háa skammtímavexti.
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent Kaupmáttur heldur áfram að aukast Neytendur Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira