Stórir hluthafar í FL Group falla frá forkaupsrétti 4. desember 2007 07:49 Æðstu menn FL Group voru í þungum þönkum á fundinum í gærkvöld. Hér má sjá Jón Ásgeir Jóhannesson, Þorsteinn M. Jónsson og Hannes Smárason ræða við lögfræðinginn Gunnar Sturluson, einn eiganda Logos, en fundurinn fór fram á lögmannsstofu þeirra.
Stærstu hluthafar FL Group og stjórn funduðu langt fram á nótt í húsi lögmannsstofunnar Logos í Efstaleiti. Hvorki Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður félagsins, eða Hannes Smárason forstjóri vildu tjá sig við Vísi að loknum fundinum. Vísir hefur heimildir fyrir því að aðalumræðuefni fundarins hafi verið hlutfjárukning félagsins og það hvort stærstu hluthafar hyggðust nýta sér lögbundinn forkaupsrétt á nýjum bréfum. Vísir veit fyrir víst að Eignarhaldsfélagið Oddaflug BV, sem er í eigu Hannesar Smárasonar, fráfarandi forstjóra félagsins, og Materia Invest, sem er í eigu Magnúsar Ármanns, Kevins Stanford og Þorsteins M. Jónssonar hafi fallið frá forkaupsrétti sínum en þessi tvö félög fara samtals með rúmlega 30% hlut í FL Group Ekki er vitað hvort Gnúpur fjárfestingafélag, sem er í eigu Magnúsar Kristinssonar, Kristins Björnssonar og Þórðar Más Jóhannessonar og á 17,5% hlut í FL Group, muni falla frá sínum forkaupsrétti né heldur Sund, sem er í eigu Jóns Kristjánssonar stjórnarformanns. Kvöldið var annars annasamt fyrir flesta af æðstu mönnum FL Group. Klukkan fimm í gærdag funduðu æðstu stjórnendur og hluthafar félagsins í höfuðstöðvum Baugs Group á Túngötu. Þar voru mættir Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group, stjórnarmennirnir Þorsteinn Jónsson og Magnús Ármann, Hannes Smárason, núverandi forstjóri, Jón Sigurðsson, núverandi aðstoðarforstjóri og verðandi forstjóri, Gunnar Sigurðsson, forstjóri Baugs og Stefán Hilmarsson, fjármálastjóri Baugs. Þeim fundi lauk um hálf sjö og strax að honum loknum hélt Jón Ásgeir til fundar við athafnamanninn Pálma Haraldsson á skrifstofu þess síðarnefnda á Suðurgötu. Þar var að öllum líkindum innsigluð aðkoma Pálma að hlutafjáraukningunni í FL Group. Klukkan níu hittust þeir Þorsteinn M. Jónsson, Magnús Ármann, Hannes Smárason og Jón Ásgeir Jóhannesson á fundi á heimili Þorsteins á Laufásvegi. Hannes yfirgaf svæðið um kl. 22. Þremenningarnir sem eftir voru héldu af stað rétt fyrir klukkan 23 á fund æðstu stjórnenda FL Group og stærstu hluthafa félagsins á lögmannastofunni Logos í Efstaleiti. Sú stofa sér um lögfræðimál félagsins. Alls voru saman komnir fjórar Range Rover-bifreiðar og þrír Porsche-jeppar á stæðinu í Efstaleiti og verðmæti bílanna ekki undir 100 milljónum. Fundahöldum var síðan framhaldið í morgun, meðal annars á skrifstofu Fons við Suðurgötu en þar mátti sjá bíla Jóns Ásgeirs Jóhannessonar og Pálma Haraldssonar. Áframhaldandi fundahöld munu vera fyrirhuguð víðs vegar um bæinn í allan dag og er jafnvel búist við því að tilkynning FL Group til Kauphallarinnar berist ekki fyrr en í kvöld.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira