Pálmi Haraldsson inn í FL Björgvin Guðmundsson skrifar 4. desember 2007 06:00 Pálmi Haraldsson.
Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður FL Group, mætti á skrifstofu Pálma Haraldssonar í Fons við Suðurgötu í gærkvöldi til að ræða aðkomu Pálma að FL Group. Gangi samningar eftir munu félög sem þessir menn eru í forsvari fyrir leggja inn fjármagn til að styrkja félagið. Unnið var að því að klára þessa samninga í gærkvöldi og fram á nótt. Pálmi og Jón Ásgeir vildu ekki tjá sig við Fréttablaðið en sögðu að málið yrði klárað sem fyrst. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa samningar meðal annars snúist um gengi á bréfum FL Group í þessum viðskiptum. Hannes Smárason forstjóri, Magnús Ármann, Þorsteinn M. Jónsson og Kevin Stanford hafa hug á að minnka hlut sinn í félaginu. FL Group mun eignast hlut Baugs í fasteignafélaginu Landic Property, áður Stoðum. Í staðinn fær Baugur afhent hlutabréf í FL Group. Ekki fengust upplýsingar um hvaða eignir eða peningar myndu fylgja aðkomu Pálma Haraldssonar að félaginu. Pálmi á einnig hlut í Landic Property. Stefnt var að því að halda stjórnarfund í FL Group í gærkvöldi til að fara yfir stöðu mála. Búið var að boða stjórnina til fundar klukkan tíu í fyrrakvöld en þeim fundi var frestað. Tekin hefur verið ákvörðun um að Hannes Smárason hætti sem forstjóri og við taki Jón Sigurðsson aðstoðarforstjóri. Mun hann gegna stöðunni á næstunni þar til annað verður ákveðið.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira