Evruskráning frestast Óli Kristján Ármannsson skrifar 7. desember 2007 03:00 Evrur
Ekki verður farin bráðabirgðaleið í skráningu hlutabréfa í evrum í Kauphöll Íslands. Þess í stað á endanleg lausn með aðkomu Seðlabanka Finnlands að vera tilbúin fyrir mitt næsta ár. Þetta kemur fram í tilkynningu Verbréfaskráningar Íslands til Kauphallar í gær. Hér er lagaumhverfi túlkað svo að uppgjör með verðbréf megi ekki eiga sér stað nema fyrir tilstilli Seðlabanka Íslands. Til þess að hann gæti annast slíkt uppgjör í evrum þurfti bankinn fyrirgreiðslu evrubanka sem tryggt gæti honum aðgang að gjaldmiðlinum. Seðlabankinn leitaði til Deutsche Bank um slíka fyrirgreiðslu og hefur um nokkurt skeið verið beðið svars þaðan. Þaðan barst svo í gær afsvar. „Þessi niðurstaða veldur því að fyrirhuguð bráðabirgðalausn er fallin á tíma. Verðbréfaskráning mun nú einbeita sér að því að innleiða endanlegt fyrirkomulag til uppgjörs á verðbréfaviðskiptum í evrum. Gert er ráð fyrir að það verði tilbúið um mitt næsta ár. Endanleg dagsetning mun liggja fyrir um áramót,“ segir í tilkynningu. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins liggur skýringin á áhugaleysi Deutsche Bank helst í því að bráðabirgðalausn sú sem stefnt var að er nokkuð flókin og kallar á töluverða vinnu vegna mikilla öryggiskrafna. Því hafi þeir ekki viljað leggja í svo mikla vinnu við framkvæmdina.
Mest lesið Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Viðskipti erlent Verslunin Air lokar í Kringlunni Viðskipti innlent Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Viðskipti innlent Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Samstarf Fleiri fréttir Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Sjá meira