Þriðju stærsta yfirtaka Íslendingar til þessa Óli Kristján Ármannsson skrifar 29. nóvember 2007 06:00 Árni Oddur Þórðarson á uppgjörsfundi hjá Marel.
Samhliða því að Marel kaupir Stork Food Systems, eignast Eyrir Invest og Landsbankinn fjórðungshlut í Stork N.V. í Hollandi í gegn um fjárfestingafélagið London Aquisition N.V. (L.A.). Eyrir á 15 prósent, Landsbankinn 10 prósent og restina á breski fjárfestingasjóðurinn Candover. LME Eignarhaldsfélag, sem var í eigu Marels, Eyris og Landsbankans, selur allan sinn hlut til L.A., sem kaupir Stork samstæðuna, utan Food Systems hlutann, fyrir um 1,7 milljarða evra, eða sem nemur um 155 milljörðum íslenskra króna. Yfirtakan er því líklega sú þriðja stærsta sem Íslendingar koma að, á eftir kaupum Kaupþings á hollenska bankanum NIBC á yfir 250 milljarða og yfirtöku Novators á Actavis sem metin var á um 175 milljarða króna. Árni Oddur Þórðarson, framkvæmdastjóri Eyris, tekur í framhaldinu sæti í stjórn Stork N.V. í Hollandi. Þar vekja viðskiptin mikla athygli enda Stork stærsta iðnaðarsamstæða landsins. „Að frátöldum Food hlutanum starfa um 11 þúsund starfsmenn hjá Stork," segir Árni Oddur. Áframhaldandi starfsemi Stork N.V. er tvíþætt, Aerospace hluti sem snýr að þjónustu við flugvélaframleiðendur á borð við Airbus, Boeing og Fokker og Technical Services, þar sem mestur vöxtur er í þjónustu við olíu- og gasiðnað. Árni Oddur er bjartsýnn á framtíðarmöguleika beggja sviða. „Aerospace er að koma úr lægð, virðist miðað við pantanastöðu sjö til átta ára uppsveifla fram undan."
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Viðskipti innlent Þórunn og Svali til Íslandsbanka Viðskipti innlent Verðbólga eykst lítillega Viðskipti innlent Lækkandi markaðsverð hafi ekki skilað sér í lítranum Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira