Uppgjör í öldudal fjármálaumróts Óli Kristján Ármannsson skrifar 28. nóvember 2007 04:15 Nærri kauphöllinni við Wall Street í New York í Bandaríkjunum er endalaus umferð um neðanjarðarlestarkerfi borgarinnar líkt og sjá má hér að ofan. Viðskiptagjörningar tengdir bandarískum undirmálslánum hafa valdið sveiflum og óróleika á fjármálamörkuðum um heim allan. Áhrifanna gætir meðal annars í uppgjörum fjárfestingarfyrirtækja hér heima. Markaðurinn/Ap
Þriðji ársfjórðungur þessa árs markast hjá fjárfestingarfélögum í Kauphöll Íslands af markaðsóróa og lækkunum í kjölfar vandræða með undirmálslán í Bandaríkjunum. Stórir erlendir bankar eru enn að tilkynna um afskriftir hárra fjárhæða vegna líkra lánavöndla. Hér á landi hafa bankar og önnur fjármála- og fjárfestingarfyrirtæki lagt á það áherslu að bein áhrif undirmálslánanna séu engin. Umrót á alþjóðamörkuðum og tap stórra fyrirtækja geta hins vegar af sér aukna áhættufælni og hafa því óbein áhrif um heim allan. Ætla má því að fjármálaumrót setji líka mark sitt á lokafjórðung ársins. Fyrir helgi skilaði Atorka uppgjöri sínu vegna fjórðungsins og því öll uppgjör komin í hús og hægt að bera félögin saman. Þó verður að hafa nokkurn fyrirvara á þeim samanburði því nokkru munar í uppgjörsaðferðum hjá hreinu fjárfestingarfélögunum Existu, Atorku og FL Group, þar sem Exista gerir upp með svokallaðri hlutdeildaraðferð. Það gerir að verkum að lækkun á markaðsvirði undirliggjandi eigna á fjórðungnum skilar sér ekki í bækur félagsins sem tap, líkt og hún gerir hjá hinum. Munurinn kemur mjög greinilega fram þegar horft er á uppgjör FL Group og Existu þar sem fyrrnefnda félagið er með bókfært tap upp á rúmlega 27,1 milljarð króna en hitt skilar í bókum sínum hagnaði upp á tæplega 648 milljónir króna (miðað við gengi evru í lok ársfjórðungsins). Þá sker Atorka sig dálítið frá hinum vegna þess að þar er hlutfall óskráðra eigna hærra og því sveiflast ekki verð þeirra í bókum félagsins með sama hætti og ef þau væru skráð á markað. Óskráð félög eru metin inn í uppgjör fjárfestingarfélaga samkvæmt hóflegu mati og á stundum endurmati. Þannig var í uppgjöri Existu uppfært um 65 milljónir evra virði óskráðrar eignar félagsins. Punktstaða í umrótiHannes Smárason Hér má sjá forstjóra FL Group kynna uppgjör félagsins eftir þriðja ársfjórðung skömmu fyrir mánaðamótin síðustu. Verðsveiflur hlutabréfaeignar félagsins skila sér beint í bókhald sem sýndi tap upp á 27,1 milljarð króna á fjórðungnum. Markaðurinn/GVAHér er engu að síður gerð tilraun til að bera félögin saman með því að reikna út svokallað V/I-hlutfall (eða Price-to-book ratio). Hlutfallið er notað til að bera saman markaðsvirði og bókfært virði. Lágt gildi getur bent til þess að bréf félagsins séu vanmetin. En „of lágt“ gildi getur um leið bent til þess að grundvallarbrestur sé í starfsemi félagsins. Sömuleiðis getur gildið gefið vísbendingu um hvort fjárfestar eru að greiða of hátt verð miðað við það sem eftir stæði ef félagið hætti skyndilega starfsemi eða yrði gjaldþrota. Í útreikningi á V/I-gildi Atorku er tekið tillit til frestanlegs skatts af söluhagnaði hlutabréfa og hefur það nokkur áhrif á útkomuna. Að öðrum kosti væri gildi félagsins nánast á pari við FL Group, 1,42 á móti 1,44. Slíkum skattgreiðslum má fresta með endurfjármögnun og ólíklegt að þær komi nokkurn tímann til greiðslu. Þá stendur yfir endurskoðun á lögum um þessa skatta með það fyrir augum að fella þá út, líkt og gert hefur verið sums staðar annars staðar. Skatturinn er í uppgjörinu tiltekinn rúmlega 1,9 milljarðar króna. Atorka virðist því koma nokkuð vel út úr uppgjöri þriðja ársfjórðungs og lágt V/I-gildi bendir til að bréf félagsins á markaði eigi töluvert inni í verði. Hagnaður móðurfélags Atorku Group fyrir þriðja ársfjórðung nemur rúmum 734 milljónum króna á fjórðungnum, en sé litið til uppgjörstæðunnar, þar sem beitt er hlutdeildaraðferð líkt og hjá Existu, nemur hagnaður félagsins 2,7 milljörðum króna. Óhætt er því að segja að reikningarnir séu áferðarfallegri en hjá hinum fjárfestingarfélögunum. Fjórðungurinn var Atorku enda um margt hagfelldur og félagið sagt hafa sannað sig með því að innleysa ellefu milljarða hagnað af fjárfestingu sinni í Jarðborunum sem seldar voru til Geysis Green Energy. Atorka varð um leið kjölfestufjárfestir í Geysi með um 32 prósenta hlut. Í kynningu fyrir fjölmiðla, fjárfesta og greinendur á uppgjöri FL Group lagði Hannes Smárason, forstjóri félagsins, áherslu á að afkoman endurspeglaði punktstöðu á órólegum markaði og því væri óvarlegt að draga af henni miklar ályktanir. Hann segir undirliggjandi gæði eigna félagsins mikil þrátt fyrir að lækkun á verði bréfa þeirra á fjórðungnum hafi í uppgjöri FL Group skilað sér í neikvæðri afkomu af fjárfestingum. „Við höfum hins vegar fremur horft á það sem ákveðið tækifæri og höfum á því fulla trú að markaðsvirði þeirra muni á endanum endurspegla gæði þeirra,“ sagði Hannes í viðtali við Fréttablaðið eftir kynningu á uppgjörinu í októberlok. Hann sagðist engu að síður gera ráð fyrir brokkgengum fjármálamörkuðum enn um sinn og sveiflum í verði hlutabréfa. Óbeinna áhrifa gætirÍ samanburði á V/I-gildinu skera bankarnir þrír sig úr enda nokkur eðlismunur á reglulegri starfsemi þeirra og hreinna fjárfestingarfélaga. Gildin eru á svipuðu róli og umtalsvert hærri en hjá hinum félögunum, 2,47 hjá bæði Glitni og Landsbankanum, en 2,38 hjá Kaupþingi. Mikil arðsemi eigin fjár er sögð réttlæta hærri gildi hjá bönkunum. V/I-gildi Straums-Burðaráss fjárfestingarbanka er svo aftur nær því sem gerist hjá fjárfestingarfélögunum, eða 1,36. Afkomutölurnar sýna enda að ólíku er saman að jafna hjá bönkunum. Á þriðja ársfjórðungi hagnaðist Kaupþing um rúma 14,4 milljarða króna, Landsbankinn um rúma 8,5 milljarða og Glitnir um tæplega 7,9 milljarða króna. Hagnaður til hluthafa Straums nam hins vegar 1,8 milljónum evra, eða rúmum 160 milljónum króna. Á sama tíma árið áður nam hagnaðurinn 17 milljónum evra. Þegar uppgjör bankans var kynnt benti William Fall, forstjóri Straums, á að rekstrartekjur bankans á fjórðungnum hefðu í raun aukist um 2,6 prósent frá árinu áður. Tap af verðbréfum hefði hins vegar numið 45 til 46 milljónum dala. Hann telur að breytingar sem ráðist hefur verið í hjá bankanum hafi bætt mjög afkomu hans í erfiðu árferði vegna óróa á fjármálamörkuðum. Líkt og önnur fjármálafyrirtæki hér leggur Straumur áherslu á að bein áhætta af undirmálslánum í Bandaríkjunum sé engin. Óbein áhrifin skila sér engu að síður í rekstri þeirra allra enda vinnuumhverfið annað úti í hinum stóra heimi. Samningum seinkar vegna þess hve varlega félög vilja stíga til jarðar og aukin áhætta sem tengd er fjármálageiranum vegna undirmálslánanna amerísku gerir fjármögnun torveldari og dýrari. Svo er bara að bíða og sjá hver þróun mála verður þegar spilin hafa verið lögð á borðið hjá fjármálafyrirtækjum heims í ársuppgjörum þeirra í janúar og febrúar. Þangað til er ekki ólíklegt að óvissa um stöðu mála geri róðurinn þungan enn um sinn hjá fjárfestingarfyrirtækjum.
Mest lesið Óttast ekki komu Starbucks til Íslands Viðskipti innlent Reyndist ekki rétt: „Reykvíkingar munu aldrei koma“ Atvinnulíf Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Selja Íslandsbanka á næstu vikum þó það sé „mikil óvissa“ Viðskipti innlent „Þetta eru bara krakkar sem eru í þessu fyrir peningana“ Neytendur „Var með skipt í miðju og notaði óhóflegt magn af geli“ Atvinnulíf Engar viðræður fyrr en Trump fellir niður tolla Viðskipti erlent Minni sala í skugga slæmra efnahagshorfa Viðskipti erlent Mikill samdráttur á pöntunum til kínverskra verksmiðja Viðskipti erlent Buffet hættir sem forstjóri við lok árs Viðskipti erlent Fleiri fréttir Landsbankinn geri úrbætur vegna lánveitinga til lítilla og meðalstórra fyrirtækja Óttast ekki komu Starbucks til Íslands Selja Íslandsbanka á næstu vikum þó það sé „mikil óvissa“ Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli „Í markaðshagkerfi þurfa menn bara að synda“ Kaupfélagið hagnaðist um 3,3 milljarða Syndis kaupir Ísskóga Segja afkomuna ásættanlega þrátt fyrir tap „Þetta er ömurleg staða“ Landsbankinn hagnaðist um 7,9 milljarða á fyrsta ársfjórðungi Hætta við að selja hlutina í Olíudreifingu Tap á Vinnslustöðinni og fjárfestingar settar á ís Rannsaka meint samkeppnisbrot Landsvirkjunar Staðfesta frávísun vegna stefnu Samskipa í samráðsmáli Play tapaði þremur og hálfum milljarði á fyrsta ársfjórðungi Staðfesta að gjöf í formi bankakorts er skattskyld Þau vilja stýra ÁTVR Býst ekki við að verðbólgan hafi áhrif á vaxtalækkunarferlið Um þrjátíu prósent hafa miklar áhyggjur af áhrifum tolla á Ísland Lauf Cycles lýkur tæplega 500 milljóna króna fjármögnun Verðbólga eykst hressilega og fer aftur yfir fjögur prósent Tæpur tveggja milljarða hagnaður á fyrsta ársfjórðungi Ráðinn forstjóri Arctic Fish Veitingamaður ákærður fyrir hundrað milljóna skattsvik Fokdýr dómsmál tjónka ekki við ÁTVR Veiðir hrefnu í sumar og selur kjötið á Íslandi Semja við Ístak um gerð mannvirkja fyrir fyrsta vindorkuver landsins Jón segir bull að FBI-kempa hafi óvænt bankað upp á með stefnu Ekki má vanmeta áhrifin af tollastríði á íslensk fyrirtæki Pizzur í stað smurbrauðs á nýrri Króníku Sjá meira