Stuðlar að fasteignalækkun 14. nóvember 2007 18:18 „
Ef íbúðakaupendur verða að taka ný og óhagstæðari lán frekar en að taka yfir gömul þá getur það bæði hægt mjög á fasteignaviðskiptum og stuðlað að verðlækkun,“ segir Gylfi Magnússon, dósent við viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands. Kaupþing, sparisjóðir og Frjálsi fjárfestingabankinn, hafa gefið út að fasteignakaupendur geti ekki yfirtekið eldri lán. Fram kom í Markaði Fréttablaðsins í gær að um þriðjungur af veltu á fasteignamarkaði sé fólginn í yfirtöku eldri lána. „Þetta getur skipt verulegu máli,“ segir Gylfi. „Mánaðarleg afborgun af hverri milljón var ríflega 5.200 krónur þegar vextir voru hvað lægstir, um fjögur prósent. Ef vextirnir eru komnir núna í til dæmis 6,5 prósent þá er afborgun af hverri milljón meira en fjórðungi meiri eða ríflega 6.600 krónur.“ Ef miðað er við tuttugu milljóna króna lán til 25 ára, segir Gylfi, sé mánaðarleg greiðslubyrði í seinna dæminu 133 þúsund krónur á mánuði en 105 miðað við lægri vextina. Gylfi bendir einnig á að ofan á þetta bætist greiðslugjöld í hverjum mánuði, auk stimpilgjalds og annars lántökukostnaðar ætli fólk að greiða upp lánin. „Síðan koma verðbætur ofan á þetta allt saman.“ - ikh
Mest lesið „Maður er reiður og sár“ Viðskipti innlent Gert að afhenda kúnnanum nýjan eyrnahreinsi með myndavél Neytendur „Ég fæ oft kaffibolla í rúmið og svoleiðis stund er heilög!” Atvinnulíf Langflestir gera þessi mistök áður en þeir byrja að mála Samstarf Verðhækkanirnar vonbrigði Viðskipti innlent Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Viðskipti erlent Einungis sjö bílar kallaðir inn Neytendur Það borgar sig að bregðast við í tíma: Hagnýt ráð frá múrarameistara Samstarf Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Viðskipti innlent „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Setja 630 milljónir í að markaðssetja Ísland sem áfangastað Atvinnuleysi 5,6 prósent í maí Hagnaður Samherja nam um 8,5 milljörðum Stefna að uppbyggingu baðlóns og hótels í Grundarfirði Hafa samið um aukin raforkukaup á Blönduósi Ráðnir forstöðumenn hjá OK Sameining tveggja lífeyrissjóða samþykkt Gissur ráðinn framkvæmdastjóri OBHM Brynja til Fastus frá Samkaupum Efla ráðgjöf við nemendur HR um kjaramál „Hvað haldið þið að þetta kosti? Milljarða, milljarða, milljarða“ Klára kaupin á Ofar og leita að nýjum framkvæmdastjóra Laufey nýr sérfræðingur hjá Landsbankanum Eykur strandveiðikvóta og gerir vertíðina þá „stærstu frá upphafi“ Tæplega 4,6 milljarða tap á rekstri borgarinnar Lægsta matvöruverðið enn oftast að finna í Prís Rakel nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Segir ríkar ástæður fyrir því að flugmenn eigi að vera vel launaðir Alvotech aflaði 20,6 milljarða í útboði og áskriftum Sjá meira