Viðskipti innlent

Áhersla Landsbanka af TM yfir á Vörð

Óli Kristján Ármannsson skrifar
Guðmundur Jóhann Jónsson er framkvæmdastjóri tryggingafélagsins Varðar, sem Landsbankinn á stóran hlut í.
Guðmundur Jóhann Jónsson er framkvæmdastjóri tryggingafélagsins Varðar, sem Landsbankinn á stóran hlut í. Markaðurinn/Völundur
Landsbanki Íslands býður viðskiptavinum um þessar mundir að flytja tryggingar yfir í Vörð tryggingar ehf. Áður var bankinn með tilboðskjör tengd tryggingum Tryggingamiðstöðvarinnar.

Breytt landslag í eignarhaldi tryggingafélaga er rót þessara breytinga, en FL Group, stærsti hluthafi Glitnis, keypti nýverið Tryggingamiðstöðina, þar sem Landsbankinn átti stóran hlut. Í nóvember í fyrra keypti hins vegar eignarhaldsfélag SP-Fjármögnunar, Landsbankans og Byrs sparisjóðs Vörð, sem þá hét Vörður Íslandstrygging. Nafni félagsins var breytt í sumar.

Guðmundur Jóhann Jónsson, framkvæmdastjóri Varðar, segir að frá í júní hafi verið keyrt upp sölusamstarf við Landsbankann og telur ljóst að félagið taki smám saman við sem aðaltryggingafélag bankans. „Við höfum verið litli aðilinn á markaðnum og erum svo sem enn, en við ætlum að breyta því þannig að í stað þess að talað verði um félögin þrjú viljum við að talað verði um félögin fjögur.“

Guðmundur segir fólk ekki jafn fastheldið á tryggingafélög og áður og telur að það láti kjör fremur ráða viðskiptunum. „Við finnum að stærri hópur er tilbúinn að skoða sín mál,“ segir hann og telur tengsl milli banka og einstakra tryggingafélaga jafnframt hafa meira að segja en áður. „Ef Landsbankinn telur sig geta boðið sínum viðskiptavinum hagstæðari kjör í samstarfi við okkur en bjóðast annars staðar kann það að hafa nokkuð mikið að segja.“

Samkvæmt heimildum Markaðarins er enn verið að meta stöðuna hjá Tryggingamiðstöðinni, enda tiltölulega skammt síðan þar urðu breytingar á eignarhaldi og yfirstjórn. Ljóst er þó að meira hangir á spýtunni en einstaklingsviðskipti viðskiptavina bankanna, því bankarnir kaupa margvíslega þjónustu af þeim tryggingafélögum sem þeir tengjast, eða hafa samið við. Þannig hefur Tryggingamiðstöðin til þessa annast kreditkortatryggingar fyrir Landsbanka Íslands, en ekki ólíklegt að viðskipti sem slík færist yfir til Varðar.

Kaup FL Group á Tryggingamiðstöðinni eru nú til skoðunar hjá Fjármálaeftirlitinu, en um mánaðamótin síðustu réði félagið yfir meira en 97 prósentum hlutafjár í TM og hafði gert tilboð í útistandandi hluti.

Hvorki náðist í Sigurð Viðarsson, forstjóra TM, né Gunnar Karl Guðmundsson, stjórnarformann félagsins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×