Skoðun

Kvótinn fellur – ný vinstristjórn

Lúðvík Gizurarson skrifar
Framsókn var lofað áframhaldandi stjórnarsetu eftir seinustu alþingis­kosningar gegn því að passa áfram kvótann, sem allur er í höndum sjálfstæðismanna. Framsóknar-Sjálfstæðisstjórn hafði haft eitt atkvæði í meirihluta eða 3 af 63 sem eru á þingi. Það dugði. Nú fór einföld og fróm sál á fund sjálfstæðismanna sem „nýr utanríkisráðherra", ráðherraefnið. Hér fór Jón Sigurðsson og var að nafninu til formaður Framsóknarflokksins. Hann var settur þar af fyrri formanni Framsóknar, Halldóri Ásgríms­syni kvótaeiganda, og ætlaði hann að láta Jón Sigurðsson passa Hornafjarðarkvótann fyrir sig. Hann valdi Jón Sigurðsson skólabróður sinn og því góðan kvótapössunarmann í þetta starf. Sem arftaka hans sem ráðherra.

Nú gerðist það eftir seinustu alþingiskosningar að Framsókn taldi sig vera að fara áfram í stjórn með Sjálfstæðisflokknum þrátt fyrir að eitt atkvæði væri í stjórnarmeirihlutanum. Hermann Jónasson stjórnaði 1934 og áfram með einu atkvæði. Það var nægur meirihluti. Þá uppgötva framsóknarmenn einn daginn að þetta var allt plat og fals og spilað var með þá. Sjálfstæðisflokkurinn hafði allan tímann falsað fyrir Framsókn og var að ganga frá stjórnarmyndun við Samfylkinguna bak við tjöldin. Sú stjórn var svo mynduð.

Nú var Framsókn hent út úr stjórn eins og Halldóri fyrir vestan. Nokkru áður kom Halldór ráðherra þaðan og sagði það seint gleymast enda hefði hann gert umyrðalaust eins og Kanar sögðu honum. Snatar hljóta aldrei mikla virðingu.

Nú er ekkert fyrir Framsókn annað að gera en hætta að greiða atkvæði með kvótanum og þá er hann fallinn og úr sögunni. Öll þorpin úti um land blómstra á ný. Setja þarf alla togara út fyrir 50 mílur og þá vex þorskstofninn fljótt í 300 þúsund tonna afla. Tekjur af þorski þrefaldast. Togaraafli fer að mestu í olíu og kostnað. Kemur ný vinstri­stjórn?

Höfundur er hæstaréttarlögmaður.




Skoðun

Skoðun

Blaður 35

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Sjá meira


×