Góð ferð Ármanns til Færeyja 5. maí 2007 02:00 Ármann Reynisson vinjettuhöfundur, til hægri, naut gestrisni Aksels Hansen, stórútgerðarmanns í Þórshöfn. Myndin er tekin í veislu Valgerðar Sverrisdóttur utanríkisráðherra í Norræna húsinu í tilefni af opnun íslensku ræðismannsskrifstofunnar. „
Ástæða ferðarinnar er sú að Færeyingar eru næstu nágrannar okkar Íslendinga, frændur og vinir ásamt Grænlendingum. Þá eru mál okkar systurtungur sem ber að rækta og efla í leiðinni. Ég vil einfaldlega opna augu heimsins fyrir þessum áhugaverðu vest-norrænu þjóðum og sérstæða menningararfi þeirra,“ segir Ármann Reynisson vinjettuhöfundur sem ferðaðist um Færeyjar í síðasta mánuði. Ármann ferðaðist um Færeyjar á þriðju viku til þess að viða að sér efni um land og þjóð sem hann ætlar að vinna úr og skrifa vinjettur í áttundu vinjettubók sína sem áætlað er að komi út haustið 2008. Í Þórshöfn var Aksel Hansen stórútgerðarmaður gestgjafi Ármanns og fór hann þaðan í ferðir vítt og breitt um eyjarnar. Vinjettuhöfundurinn segist hafa hitt og heimsótt fjöldann allan af fólki úr öllum geirum þjóðfélagsins, las upp vinjettur og ræddi málin. Auk þess viðaði hann að sér bókum og listaverkum. Í ferð sinni afhenti Ármann Landsbókasafni Færeyja vinjetturitsafn að gjöf og veitti Martin Martinæs landsbókavörður bókunum viðtöku. Ármann segir að við þetta tækifæri hafi margir málsmetandi menn sýnt því áhuga að gefin verði út tvítyngd vinjettubók á færeysku og íslensku til þess að gefa fólki í báðum löndunum tækifæri til þess að kynnast betur tungumálunum sem svo auðvelt er að skilja og setja sig inn í ef áhugi er fyrir hendi. Sjöunda vinjettubók Ármanns kemur út nú í haust þar sem meðal annars er að finna sögur frá Grænlandsferð höfundarins á síðasta ári. Færeyjaferð hans verður svo gerð skil í áttundu vinjettubókinni á næsta ári.
Mest lesið Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Lífið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Lífið Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp Ef þú finnur fyrir einkennum, hlustaðu á líkamann Lífið samstarf Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Fleiri fréttir Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Sjá meira