Vill evrópska risakauphöll 16. júní 2006 08:30 Jean Claude Trichet Bankastjóri Seðlabanka Evrópu vill frekari sameiningu kauphalla.
Jean-Claude Trichet, bankastjóri Seðlabanka Evrópu, segist frekar vilja að evrópska kauphallarsamstæðan Euronext sameinist Þýsku kauphöllinni, Deutsche Boerse, en Kauphöllinni í New York (NYSE). Forsvarsmenn Euronext hafa nú þegar tilkynnt að sameining við NYSE sé í burðarliðnum. Ég er Evrópumaður og fyndist eðlilegra að tvær evrópskar kauphallir tækju saman höndum. Ég kem hins vegar hvergi nærri þessari ákvörðun, sagði Trichet. Verði úr sameiningu NYSE og Euronext verður til stærsti hlutabréfamarkaður heims og sá fyrsti sem nær yfir tvær heimsálfur. Forsvarsmenn Deutsche Boerse segjast ekki ætla að láta deigan síga og hyggjast reyna til þrautar að landa samningum við Euronext. Líklegast verður þó að telja að sameining NYSE og Euronext verði að veruleika. Euronext hefur höfuðstöðvar í París og rekur kauphallir í Amsterdam, Brussel og Lissabon, auk þess að koma að rekstri kauphalla í Madríd og Mílanó. Mikil sameiningarhrina er nú á hlutabréfamörkuðum víða um heim og freista forsvarsmenn kauphalla þess að lækka stofnkostnað. Fréttir hafa borist af yfirvofandi sameiningu NASDAQ í New York og Kauphallarinnar í Lundúnum en ekki hefur náðst samkomulag enn.
Mest lesið Dóttirin föst á amerískum tíma og minningar um ást og andarteppu Atvinnulíf Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Viðskipti erlent Bensínverð hefur lækkað Viðskipti innlent Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Viðskipti erlent Atvinnuleysi minnkar milli mánaða Viðskipti innlent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Viðskipti erlent Ferð í Silfru valin sú besta af því besta á heimsvísu Viðskipti innlent Arion banki hækkar vexti Viðskipti innlent Eftirlitið á að hefjast á morgun en verður mótað eftir helgi Viðskipti innlent Lúxusbílaframleiðandi bauð íslenskum bræðrum í draumaferð til Kína Samstarf Fleiri fréttir Lágjaldaflugfélagið Spirit Airlines hættir rekstri Ætlar að hækka tolla á bíla frá Evrópu í 25 prósent Olían ekki verið dýrari síðan Pútín réðst inn í Úkraínu Vill 22 billjónir frá OpenAI: „Það er ekki í lagi að stela góðgerðafélagi“ Verði að koma betur í veg fyrir að yngri en þrettán ára séu á Facebook og Instagram Furstadæmin yfirgefa OPEC Tim Cook stígur til hliðar Sementsrisi dæmdur fyrir að fjármagna Ríki íslams Leggur hundrað prósenta toll á einkaleyfisvarin lyf Sjá meira