Vinnuhestar eru betri námsmenn 23. ágúst 2006 07:30 í skólanum Þeir sem vinna með náminu skrópa oftar í kennslustundum en aðrir og finnst leiðinlegra í skólanum.
Þeir framhaldsskólanemar sem vinna með náminu skila betri námsárangri en þeir sem vinna ekki, klára fleiri einingar og falla síður, þrátt fyrir að þeir hafi minni tengsl við skóla og félagslíf, nýti minni tíma í heimanám, séu meira fjarverandi úr skólanum og finnist hann leiðinlegri. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri könnun sem félagsfræðingar við Menntaskólann í Kópavogi, Fjölbrautarskólann í Ármúla og Kvennaskólann í Reykjavík unnu í skólunum þremur. Í könnuninni kemur fram að stúlkur vinni frekar með námi en piltar, eldri nemendur vinni frekar og vinna aukist í samræmi við það hversu langt nemendur eru komnir í námi. Þá er líklegra að nemandi vinni þeim mun minni menntun sem foreldrar hans hafa. Það segir Hannes Í. Ólafsson, einn þeirra sem könnunina gerði, sérstakt í ljósi þess að samkvæmt könnunum hafi lítil menntun foreldra neikvæð áhrif á námsárangur, sem stangist á við niðurstöður þessarar könnunar sem sýnir að þeir sem vinna standa sig betur. Könnunin leiðir í ljós að 65 prósent nemenda vinna með námi, mismikið eftir skólum. Hannes segir hlutfallið þó geta verið hærra, þar sem líklegra sé að þeir sem vinna hafi verið fjarverandi úr skólanum þegar könnunin var lögð fyrir. Könnunin var styrkt af Þróunarsjóði framhaldsskóla.
Innlent Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Erlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent Slydda og snjókoma til fjalla Veður Fleiri fréttir Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Ekki eina leiðin til að uppfylla skuldbindingar Íslands „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Sveitarstjórnin flytur sig um set vegna myglu Röð skjálfta ekki áhyggjuefni út af fyrir sig Gera þurfi breytingar á þingsköpum til að efla virðingu og traust Arnarnesvegur opnar loks á morgun „Þeir eru að borða gras úr garðinum og snigla“ Skjálfti upp á 3,4 „Auðvitað alltaf erfitt að koma að svona vettvangi“ Banaslys á Austurlandi og barátta upp á líf og dauða Hafði lítil afskipti af veisluhöldum Vítisenglanna Sprengisandur: Pólitíkin, fíknimeðferð og neistinn kveiktur Tveir létust í fjögurra bíla árekstri á Austurlandi Ók bílnum yfir kant og upp á gras en hafnaði að lokum á ljósastaur Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Sjá meira