Innlent

Gunnar leiðir á ný

Gunnar kominn aftur í forystuna en kapphlaupið er hnífjafnt engu að síður.
Gunnar kominn aftur í forystuna en kapphlaupið er hnífjafnt engu að síður. MYND/Samfylkingin

Nú rétt í þessu bárust tölur í prófkjöri Samfylkingarinnar í SV-kjördæmi.

Hafa atkvæði fallið þannig að Gunnar Svavarsson hefur hlotið 1245 atkvæði í 1. sæti, Katrín Júlíusdóttir 2061 atkvæði í 1.-2. sæti, Þórunn Sveinbjarnardóttir 2155 atkvæði í 1.-3. sæti, Árni Páll Árnason 1749 atkvæði í 1.-4. sæti, Guðmundur Steingrímsson 1838 atkvæði í 1.-5. sæti, Tryggvi Harðarson 1436 í 1.-6. sæti, Sonja B. Jónsdóttir 1839 atkvæði í 1-7. sæti og Jakob Frímann Magnússon 1853 atkvæði í 1.-8. sæti.

Spenna er mikil í prófkjörinu og voru meira að segja birtar vitlausar tölur klukkan tíu í kvöld. Var þá Gunnar Svavarsson sagður efstur en Þórunn Sveinbjarnardóttir í þriðja sæti. Stuttu seinna voru tölurnar leiðréttar og kom þá í ljós að Gunnar og Þórunn höfðu haft sætaskipti. Núna þegar aðeins á eftir að telja utankjörstöðvaratkvæði, sem eru um 400 talsins, munar aðeins 19 atkvæðum á Gunnari og Þórunni í fyrsta sætið.

Alls greiddu um 4.700 manns atkvæði í prófkjörinu.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×