Afkoma ríkissjóðs betri en gert var ráð fyrir 10. ágúst 2006 13:10
Greiðsluuppgjör ríkissjóðs eftir fyrri árshelming 2006 sýnir að handbært fé frá rekstri jókst um 29,7 milljarða króna innan ársins. Er það sextán milljörðum hagstæðari útkoma en á sama tíma í fyrra og 35 milljörðum króna meira en gert var ráð fyrir í áætlun. Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu 183 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins sem er rúmum 17 milljörðum króna meira en á sama tíma í fyrra. Raunaukning skatttekna og tryggingargjalda var 8 prósent að teknu tilliti til hækkunar almenns verðlags. Skattar á tekjur og hagnað námu 65 miljörðum króna og jukust um 16 milljarða, eða um 33 prósent, frá síðasta ári. Þar af jókst tekjuskattur einstaklinga um 12 prósent, lögaðila um 98 prósent og fjármagnstekjuskattur um 43 prósent. Innheimta eignarskatta nam 5,5 milljörðum króna sem er 27 prósent minna en á sama tímabili í fyrra. Innheimta almennra veltuskatta nam 82 milljörðum króna á fyrri helmingi ársins og jókst um 10 prósent að nafnvirði eða 4 prósent umfram hækkun vísitölu neysluverðs. Í Vefriti Fjármálaráðuneytsins segir að vegna lagabreytinga sem fela í sér rýmri greiðslufrest á virðisaukaskatti og aðflutningsgjöldum fari marktækni samanburðar við fyrra ár eftir því hvaða tímabil innan ársins sé til skoðunar. Sé litið á hreyfanlegt meðaltal nokkurra mánuða komi fram að verulega hafi þó hægt á raunvexti tekna af sköttum sem lagðir eru á vöru og þjónustu. Greidd gjöld nema 153, 2 milljörðum króna og hækka um 0,8 prósent milli ára. Vaxtagreiðslur lækka um 7,7 milljarða, einkum vegna þesss að stór flokkur spariskírteina var á innlausn í apríl í fyrra. Að vöxtunum undanskildum hækkuðu gjöldin um 8,9 milljarða eða um 6,1 prósent.
Mest lesið Samherji gæti tvöfaldast Viðskipti innlent Hámark tvær vikur í heilsutengd áramótaheit með eiginkonunni Atvinnulíf Gert að afhenda búslóðina eftir að hafa haldið henni í gíslingu Neytendur Range Rover Sport er lúxusjeppi sem tekið er eftir Samstarf Komst ekki á toppinn og bótakröfunni hafnað Neytendur Fær íshellaferð ekki endurgreidda Neytendur Ný tækni, ný kynslóð, ný viðhorf: Yngsti sölumaðurinn eins árs Atvinnulíf Eldsneytisverð gæti lækkað um tugi króna á nýju ári Neytendur Húðflúrari fór frá hálfkláruðum fugli á hálsi Neytendur Von, hugrekki og virðing við lok lífs Skoðun Fleiri fréttir Samherji gæti tvöfaldast Bíóstólarnir í Álfabakka til sölu Bærinn bótaskyldur og þarf að bjóða líkamsræktarstöð út aftur Flogin frá Icelandair til Nova Virðist ekki vera hægt á Íslandi Minni líkur á vaxtalækkun: „Þeim verður vandi á höndum, seðlabankafólkinu“ Skattleysismörk barna yngri en 16 ára hækka Frosti og Arnþrúður fá styrki Verðbólga eykst verulega Hefja sölu á fyrstu hliðstæðu við Simponi í heiminum Stefán útvarpsstjóri gáttaður á Stefáni útvarpsstjóra Framkvæmdastjóri Lyfjavals hættur Eyða óvissu á lánamarkaði strax á mánudag Ljúka kaupum á Hreinsitækni og HRT þjónustu Gréta María um starfslokin: „Ég geng stolt frá borði“ Síminn fær heimild til að reka áfram 2G og 3G þjónustu Breyta nafni Ölgerðarinnar Jón Ingi nýr forstjóri PwC Tekur við sem hagfræðingur Viðskiptaráðs Gréta María óvænt hætt hjá Prís Ráðinn nýr fjármála- og rekstrarstjóri Lyfja og heilsu Þrír eða færri skoða eign í fyrstu viku á sölu Byrjunarverð hjá NiceAir tæplega sextíu þúsund krónur Leigan rukkuð mánaðarlega en ekki í lokin Frá Logos til Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi Alcoa stefnir Eimskip að nýju í samráðsmáli Aron Kristinn stofnar goðsagnakennt fyrirtæki Vill verða stjórnarformaður Íslandsbanka: „Hvaða sirkus er þetta?“ Geta þurft að greiða hátt verð fyrir póstsendar gjafir Segja ráðherra fórna íslenskum hagsmunum í makrílsamningi Sjá meira