Viðskipti innlent

Uppsagnir hjá Össuri í Ameríku

Össur er með höfuðstöðvar sínar hér í Orkuhúsinu við Suðurlandsbraut í Reykjavík.
Össur er með höfuðstöðvar sínar hér í Orkuhúsinu við Suðurlandsbraut í Reykjavík. Mynd/Össur hf.

Össur hf. ætlar að endurskipuleggja hluta af starfsemi félagsins í Norður Ameríku, að því er fram kemur í tilkynningu fyrirtækisins til Kauphallar Íslands í dag. Endurskipulagningin er sögð þáttur í samþættingaráætlun félagsins í kjölfar kaupanna á stuðningstækjafyrirtækjunum Royce Medical og Innovation Sports í Bandaríkjunum.

Á árinu ætlar Össur að loka á starfsstöð félagsins í Bothell í Washington, útvista fjöldaframleiðslu á spelkum og stuðningsvörum frá Norður Ameríku til Asíu, flytja starfsstöð félagsins í Kanada í minna húsnæði, sameina framleiðslu sérgerðra hnjáspelkna í Bandaríkjunum í Foothill Ranch í Kaliforníu og koma fyrir á einum stað starfsstöðvum Jerome Medial og Philadelphia Collar í Thorofare í New Jersey. Á sama stað verður sett upp dreifingarmiðstöð fyrir austurströnd Bandaríkjanna.

Fram kemur að í kjölfar endurskipulagningarinnar verði starfsmönnum Össurar í Norður Ameríku fækkað um sem nemur 80 manns. "Félagið leggur áherslu á að veita fráfarandi starfsmönnum stuðning við umbreytingarnar, meðal annars í formi faglegrar ráðgjafar um starfsskipti," segir í tilkynningu til Kauphallar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×