Ekki friðvænlegt í Straumi 31. maí 2006 06:00
Yfirtökunefnd mun skoða hvort yfirtökuskylda kunni að hafa myndast í Straumi-Burðarási eftir að félag Björgólfsfeðga og tengdir aðilar eignuðust meirihluta í Gretti, sem er einn stærsti hluthafinn í Straumi. Samson Global Holding, annað félag Björgólfsfeðga, heldur þessu til viðbótar utan um fimmtungshlut í Straumi. Þetta eru hefðbundin vinnubrögð hjá nefndinni að kanna slíkt þegar aðilar nálgast yfirtökumörk en þau liggja við fjörutíu prósenta eignarhlut. Með þessum kaupum hefur staða stjórnarformannsins Björgólfs Thors Björgólfssonar styrkst innan Straums og ljóst að hann hefur myndað öflugt bandalag með Sundsmönnum sem eiga mann í stjórn Straums. Heimildarmenn telja ólíklegt að friður skapist í bráð innan hluthafahóps Straums en Björgólfur Thor og Magnús Kristinsson, varaformaður stjórnar, hafa eldað grátt silfur saman. Jafnframt vaknar upp sú spurning hvort TM verði áfram skráð á markaði eftir að Sund seldi þriðjungshlut sinn til Blátjarnar, félags sem er að langmestu leyti í eigu Björgólfsfeðga og Sunds. Ekki er talið ólíklegt, samkvæmt heimildum Markaðarins, að áframhaldandi skráning félagsins, sem er eina tryggingafélagið á markaði, verði íhuguð gaumgæfilega eftir þessi viðskipti en hugur stjórnenda TM stendur til þess að vera áfram á markaði eins og komið hefur fram í fjölmiðlum hjá Óskari Magnússyni, forstjóra TM.
Mest lesið Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Viðskipti innlent Of snemmt að draga fram heykvíslar Viðskipti innlent Ódýrast að tjalda á Vesturlandi Neytendur Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Viðskipti innlent Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Viðskipti innlent Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Viðskipti innlent Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Viðskipti innlent Ósáttur við skjal Samkeppniseftirlitsins: „Mér finnst þetta bara ófaglegt“ Neytendur Drangar kaupa Brauð & Co Viðskipti innlent Bylgjan slær enn met í hlustun Samstarf Fleiri fréttir Neytendastofa tæklar bílastæðaöppin Kristjana nýr framkvæmdastjóri Saffran Loka Te og kaffi á Suðurlandsbraut Eitt app fyrir ferðamenn til að skemmta sér og forðast hættur Of snemmt að draga fram heykvíslar Alvarlegt að forstjóri Samkeppniseftirlitsins taki undir með ASÍ og FÍB Fríverslunarsamningur EFTA og Víetnam í höfn Hægt að ráðstafa séreign í október frá og með 1. janúar Samkeppniseftirlitið hugsi yfir verðbreytingum olíufélaganna Drangar kaupa Brauð & Co Gul viðvörun hjá öllum og fjörutíu prósent á rauðu Mango opnar í Kringlunni Landsbankinn annast skráningu Styrkáss Má gefa börnunum sínum peninga? Vinna að því að fella niður kolefnisgjöld á strandsiglingar „Lukkuhjól“ Byko talið villandi fyrir neytendur Nýr framkvæmdastjóri Kalon Áfengisgjaldið tvöfalt hærra en veiðigjaldið en varla rætt Bera sig eftir viðskiptasamböndum Bakkusar „Maður er reiður og sár“ Verðhækkanirnar vonbrigði Guðrún Gígja nýr yfirlögfræðingur hjá Fossum Þórunn og Svali til Íslandsbanka Verðbólga eykst lítillega Ingólfur kaupir Ísbúð Vesturbæjar Vara við aðskotaefni í tei Bryndís frá Danmörku til Ölgerðarinnar Innkalla Land Rover-bíla vegna brunahættu „Þessu verður ekki breytt af Seðlabankanum einum“ Vélfagsmenn fóru bónleiðir til búðar frá Hæstarétti Sjá meira