Verður þriðja stærsta kvenfatakeðja Bretlands 28. júní 2006 06:00 Derek Lovelock, forstjóri Mosaic Fashions Eftir samrunann við Rubicon rekur félagið 1.700 verslanir í 27 löndum. Karen Millen hefur gengið sérstaklega vel í útrásinni.
Eggert Þór Aðalsteinsson skrifar Erfiður ársfjórðungur er að baki hjá Mosaic Fashions, sem rekur tískuverslunarkeðjurnar Coast, Karen Millen, Oasis og Whistles, en stjórnendur félagsins líta bjartsýnir fram á veginn. Eitt stærsta verkefnið framundan er samruni Mosaic og Rubicon Retail sem er regnhlíf yfir Shoe Studio Group, Principles og Warehouse. Þetta er gríðarlega mikilvægur sóknarleikur hjá okkur og gerir félagið að stórum þátttakanda á þessum markaði, segir forstjórinn Derek Lovelock. Mosaic mun nærri tvöfaldast við samrunann, reka 1.700 eigin verslanir í 27 löndum og hafa 12.500 starfsmenn á sínum snærum. Sameinað félag verður þriðji stærsti smásalinn með kvenfatnað á Bretlandseyjum á eftir Arcadia (TopShop/Dorothy Perkins) og New Look með sex kvenfatamerki og sjö skómerki. Áreiðanleikakönnun stendur nú yfir en Lovelock vonast til þess að eftir tvo til þrjá mánuði gangi félögin tvö í eina sæng. Í máli Richards Glanville, fjármálastjóra Mosaic, á kynningarfundi kom fram að eigendur Rubicon myndu annars vegar fá peninga og hins vegar hlutabréf en nákvæm skipting lægi ekki enn fyrir. Sameinað félag er metið á um 80 milljarða króna og gerir það að áttunda verðmætasta félaginu í Kauphöll Íslands. Hagnaður Mosaic Fashions var 800 þúsund pund á fyrsta ársfjórðungi, eða sem svarar 110 milljónum króna, og jókst um þriðjung frá fyrra ári. Velta samstæðunnar nam 98,4 milljónum punda (13,3 milljörðum króna) á sama tíma og jókst um ellefu prósent á milli ára. Framlegðarhlutfallið lækkaði úr 12,7 prósentum niður í 10,3 prósent. Markaðsaðstæður voru erfiðar vegna óhentugs veðurfars á Bretlandsmarkaði og svo skilaði unga fólkið, sem eltir tískuna, sér ekki í þeim mæli sem vonast hafði verið en það er stærsti kúnnahópurinn. Það olli birgðasöfnun, fyrst og fremst hjá Oasis sem telur um 40 prósent af heildarveltu Mosaic Fashions og lækkaði bæði sala og framlegð hjá Oasis-verslunum. Hins vegar var mikil söluaukning hjá Karen Millen (+18%) og Coast (+45%) en þau eru samanlagt svipuð að stærð og Oasis. Bætt veðurfar hefur skilað sér í aukinni sölu á öðrum ársfjórðungi. Vaxtarbroddur Mosaic Fashions liggur á alþjóðlegum mörkuðum en sala jókst um þriðung á fyrsta ársfjórðungi rekstrarársins samanborið við sama tímabil í fyrra. Nú er svo komið að 34 prósent af veltu samstæðunnar kemur erlendis frá sem er með því hæsta sem þekkist hjá breskum smásölukeðjum og koma vörumerki félagsins við sögu í 847 verslunum í 33 löndum. Við höfum lagt á okkur mikla vinnu til gera okkur kleift að vaxa erlendis og taka stöðu á ýmsum svæðum. Karen Millen hefur náð frábærum árangri á erlendum mörkuðum og sækir enn í sig veðrið, segir Lovelock. Stefnt er að því að fjölga Karen Millen-verslunum í Þýskalandi og Bandaríkjunum auk þess sem vöxtur í Austur-Evrópu er fyrirhugaður á næstunni. Stefnt er að því að opna 54 nýjar verslanir í Bretlandi á þessu ári og 47 verslanir á öðrum mörkuðum.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira