Sölumet féllu hjá Högum fyrir jólin 29. desember 2006 06:45 Verslað í Hagkaup. Jólaverslun gekk vel í verslunum Haga og var betri en í fyrra sem þó var metár. MYND/Vilhelm
Mikil söluaukning var á matvörum og sérvörum í verslunum Haga, stærsta smásalans á íslenskum verslunarmarkaði, fyrir jólin. Metdagur var í Bónusverslunum á Þorláksmessu og eins var sölumet á einum degi slegið í hinni tíu þúsund fermetra verslun Hagkaupa í Smáralind. Þá var söluaukning bæði í sérvöruverslunum í Kringlu og Smáralind þar sem Hagar eiga fjölda verslana. Karen Millen opnaði nýja verslun í Smáralind fyrir jólin sem hlaut góðar viðtökur. „Það sem kemur okkur þægilega á óvart er að verslun er að styrkjast þrátt fyrir aukin ferðalög til útlanda,“ segir Finnur Árnason, forstjóri Haga. Töluverð aukning var á jólaverslun í fyrra samanborið við 2004. Finnur segir að jólaverslunin í ár sé meiri en í fyrra þótt hann nefni engar tölur í þeim efnum. Finnur segir að Hagkaup í Smáralind velti á Þorláksmessu upphæð sem nemi ársveltu margra verslana í húsinu. Hann nefnir einnig að föstudagurinn 22. desember hafi komið sterkur út í verslunum fyrirtækisins. Hagar veltu 22,2 milljörðum króna á fyrstu sex mánuðum rekstrarársins sem hófst í mars.
Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Fleiri fréttir Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Sjá meira