Seðlabankinn þegir í tvær til þrjár vikur 13. desember 2006 06:30 Eiríkur Guðnason Seðlabankastjóri
Óli Kristján Ármannsson skrifar Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að setja á þagnartímabil í þrjár vikur fyrir útgáfu Peningamála og tvær vikur fyrir aðra vaxtaákvörðunardaga. Ákvörðun um þetta var tekin fyrir helgi að sögn Eiríks Guðnasonar seðlabankastjóra. Næsti vaxtaákvörðunardagur er 21. desember og fyrsta þagnartímabil bankans því þegar hafið. Eiríkur segir það ekki síst vera fyrir ásókn greiningardeilda erlendra fjármálastofnana að þagnartímabilsleiðin hafi verið farin. „Þær hafa sóst hér eftir fundum og einhvern veginn hitt nákvæmlega á að vera svona skömmu fyrir ákvörðunardag,“ segir hann og bætir við að þekkist að sami háttur sé hafður á í öðrum seðlabönkum. Nú tjá starfsmenn bankans sig því ekki um stefnu hans eða efnahagsmál þegar að vaxtaákvörðun líður. „Við gefum út mikið efni með Peningamálum og nokkuð þegar aðrir ákvörðunardagar eru og okkur þykir það nóg. Svona framlag af okkar hálfu hefur stóraukist með Seðlabankalögunum og framkvæmd þeirra og ætti að nægja,“ segir hann. Greiningardeildir bankanna hér segja ákvörðun bankans skiljanlega og í raun sé með þessu lítið annað gert en að formgera fyrirkomulag sem þegar hafi verið við lýði. Á fimmtudaginn eftir viku er aukavaxtaákvörðunardagur hjá Seðlabankanum, en í nóvember byrjun lét bankinn stýrivexti óbreytta í 14 prósentum, en hvað frekari hækkun í spilunum yrðu þróun efnahagsmála ekki hagfelld. Greiningardeildir bankanna gera allar ráð fyrir hækkun. Ingólfur Bender, forstöðumaður greiningardeildar Glitnis, segir flest það sem gerst hafi frá síðasta vaxtaákvörðunardegi ýta undir þörfina á hækkun og bendir þar bæði á gengisþróun og tölur um viðskiptahalla. Glitnir spáir 25 punkta hækkun. Landsbankinn telur að hækkunin gæti numið allt að 50 punktum, með fyrirvara um hvernig hagvaxtarmæling sem birt verður í dag kemur út. Þá gerir greiningardeild Kaupþings ráð fyrir 50 punkta hækkun og rekur þörfina á henni ekki síst til lítils aðhalds í nýsamþykktum fjárlögum. Bent er á að fjárlögin geri ráð fyrir töluverðri lækkun skatta og hækkun útgjalda um leið. Greiningardeildin segist óttast að vegið sé nærri grunnafkomu ríkissjóðs sem muni hefna sín um leið og þensla gangi niður. „Ennfremur, virðast allir hemlar á fjárfestingum ríkisins vera að gefa eftir og gildir einu hvort um sé að ræða bein ríkisútgjöld eða einkaframkvæmdir á vegabótum,“ segir bankinn og bendir á að baráttan við verðbólguna sé enn í algleymingi.
Mest lesið Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Viðskipti innlent Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Viðskipti innlent Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Viðskipti erlent Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Viðskipti innlent Fleiri fréttir Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Sjá meira