Tónlist

Bó á vinsældalista í Þýskalandi

Þjóðverjum fellur vel í geð flutningur Björgvins á laginu Eina ósk eftir Jóhann G. Jóhannsson.
Þjóðverjum fellur vel í geð flutningur Björgvins á laginu Eina ósk eftir Jóhann G. Jóhannsson.

„Nei nei, og þó …jú," svarar Björgvin Halldórsson stórsöngvari spurður út í fréttir þess efnis að lagið Eina ósk í hans flutningi sé að slá í gegn í Þýskalandi um þessar mundir.

Á dögunum barst Björgvini tölvupóstur frá Christian Milling, útvarpsstjóra Radio 700 í Þýskalandi. Stöðin, sem nær til hálfrar annarrar milljónar heimila þar í landi, leggur áherslu á tónlist frá sjöunda áratugnum fram undir lok þess níunda og færði útvarpsstjórinn söngvaranum þær fréttir að Eina ósk hafi verið ofarlega á vinsældalista stöðvarinnar svo vikum skipti.

„Þessi Christian vissi að ég hafði verið í Evróvisjón og fleiru og vill endilega taka viðtal við mig og gera tveggja tíma þátt um mig og tónlistina sem ég hef gert í gegnum tíðina," segir Björgvin. Þátturinn heitir Startreff og í þeim hefur verið rætt við nokkrar skærustu stjörnur Þýskalands, til dæmis Dieter-Thomas Heck, Hans Blum og Bernd Clüver. „Hann býðst til að taka viðtalið á þýsku, ensku, frönsku, allt eftir því hvað hentar mér. Ég hef náttúrlega tök á þessu öllu saman og get valið úr," segir Björgvin og slengir fram nokkrum þýskum orðum eins og ekkert sé.

„Það er spurning hvort við tökum þetta ekki bara á esperanto."

Björgvin segir gaman hversu lengi lög sín hafa lifað og ekki síst að það sé verið að spila lög á íslensku í útlöndum. „Ég fæ flutningsskýrslur víða að úr heiminum, aðallega Evrópu. Ég læt þó vera að tala um vinsældir í því sambandi, þær eru afstæðar. En það er ekki ónýtt að komast að í Þýskalandi, þetta er annar stærsti markaðurinn í heiminum," segir Björgvin, sem bíður spenntur eftir að Christian hringi hvað úr hverju.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×