Leikjavísir

PS3 næstum uppseld í Japan

Úr verslun í Tókýó. Hamagangur var í verslunum í Japan þegar sala hófst á PlayStation 3 leikjatölvunni á laugardag.
Úr verslun í Tókýó. Hamagangur var í verslunum í Japan þegar sala hófst á PlayStation 3 leikjatölvunni á laugardag. MYND/AFP

Sala á leikjatölvunni PlayStation 3 frá Sony hófst í Japan á laugardag. Tölvurnar dvöldu ekki lengi í hillum verslana því óþreyjufullir leikjatölvuunnendur rifu þær jafnóðum út. Strax á mánudag voru þær við það að seljast upp enda fóru einungis hundrað þúsund stykki í sölu.

Ástæðan fyrir því að svo takmarkað magn fór í sölu var galli í Blu-ray drifi leikjatölvunnar, sem hamlaði frekari framleiðslu. Sala á tölvunni hefst í Bandaríkjunum í næstu viku. Evrópubúar fá hana hins vegar ekki í hendur fyrr en í mars á næsta ári.

Breska dagblaðið The Guardian segir breska foreldra óánægða yfir því að fá leikjatölvuna í mars enda hafi margir ætlað að gleðja börn sín með hörðum pökkum um jólin. Nokkrir ætla að ganga svo langt að kaupa tölvuna í Bandaríkjunum og Japan. Það er hins vegar erfiðleikum bundið því Sony hefur lagt blátt bann við innflutningi á henni á milli heimsálfa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×