Tónlist

Kvöld söngvaskálda

Eyþór Gunnarsson kemur fram á söngaskáldskvöldi á Domo í kvöld
Eyþór Gunnarsson kemur fram á söngaskáldskvöldi á Domo í kvöld

Efnt verður til söngvaskáldakvölds á veitingastaðnum Domo í Þingholtsstræti í kvöld. Þar munu tónskáld, textahöfundar og flytjendur ólíkra kynslóða skiptast á að prufukeyra nýtt frumsamið efni og síðan verður efnt til spunatíðar þar sem Eyþór Gunnarsson, Einar Scheving, Óskar Guðjónsson og Róbert Þórhallsson annast undir- eða meðleik.

Skipuleggjendur og bakhjarlar söngvaskáldakvöldanna eru Félag tónskálda og textahöfunda, Félag íslenskra hljómlistarmanna og eigendur Domo.

Dagskráin hefst kl. 21, aðgangur er ókeypis og öllum heimill meðan húsrúm leyfir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×