Tónlist

Sameinaðir Bítlar

bítlarnir
bítlarnir

Platan Love með Bítlunum kemur út þann 20. nóvember. Á plötunni er að finna lög sem Sir George Martin, sem var upptökustjóri Bítlanna, og sonur hans Giles endurhljóðblönduðu fyrir sýninguna Cirque du Soleil í Las Vegas.

„Þessi plata sameinar Bítlana á nýjan leik, vegna þess að skyndilega eru þarna John, George, ég og Ringo,“ sagði Paul McCartney. „Þetta er töfrum líkast.“

Trommarinn Ringo Starr er einnig ánægður með plötuna. „George og Giles unnu gott starf í því að koma þessum lögum saman. Platan er mjög kraftmikil og ég heyrði meira að segja ýmislegt sem ég var búinn að gleyma að við hefðum tekið upp,“ sagði hann.

Platan hefur að geyma 78 mínútur af tónlist. Í viðhafnarútgáfu fylgir með DVD-mynddiskur með lögunum sem verður nokkrum mínútum lengri. Á meðal laga á plötunni eru Get Back, Eleanor Rigby, I Am the Walrus, Something, Help!, Blackbird, Strawberry Fields Forever, Hey Jude og All You Need is Love.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×