Tónlist

Gangandi kálhaus

Liam Gallagher hefur ekki mikið álit á Pete Doherty og eiturlyfjaneyslu hans.
Liam Gallagher hefur ekki mikið álit á Pete Doherty og eiturlyfjaneyslu hans.

Söngvarinn Liam Gallagher hefur nú sagt álit sitt á rokkstjörnunni Pete Doherty og eiturlyfjaneyslu hans. Gallagher segir að rokkarinn frægi sé gangandi kálhaus og vælukjói.

„Það hafa allir rokkarar notað eiturlyf og það er ekkert nýtt, en að skrá sig í meðferð af minnsta tilefni í stað þess að taka bara á málunum sjálfur er bara aumingjaskapur og heigulsháttur," segir Liam og vandar Doherty ekki kveðjurnar með því að segja að það séu engir alvörurokkarar uppi í dag heldur séu þetta mömmustrákar sem eru að reyna að sýnast harðir.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×