Tónlist

Ný plata frá Eminem

Ný plata frá rapparanum snjalla Eminem er væntanleg í byrjun desember.
Ný plata frá rapparanum snjalla Eminem er væntanleg í byrjun desember.

Ný plata frá rapparanum Eminem, The Re-Up, er væntanleg í verslanir 4. desember næstkomandi. Um er að ræða mix-plötu sem Eminem gerði með Dj Whoo Kid.

Á plötunni verða sex ný lög með Eminem, þar á meðal fyrsta smáskífulagið sem nefnist Thing Need to Change. Er það tileinkað rapparanum og félaga hans úr D-12, Proof, sem var skotinn til bana fyrr á þessu ári. Meðal fleiri kappa sem koma fram á plötunni eru Dr. Dre, 50 Cent og Jay-Z.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×