Tónlist

Flýr hverfið sitt

Í sjálfsskoðun Jens Lekman hefur tekið sér frí frá upptökum á nýjustu breiðskífu sinni og spilar í kvöld á Iceland Airwaves.
Í sjálfsskoðun Jens Lekman hefur tekið sér frí frá upptökum á nýjustu breiðskífu sinni og spilar í kvöld á Iceland Airwaves.

Svíinn Jens Lekman treður upp í Þjóðleikhúskjallaranum í kvöld en honum var bætt við dagskrá Airwaves á síðustu stundu.

Jens vinnur nú hörðum höndum að nýjustu breiðskífu sinni og hafði reyndar tilkynnt að hann hygðist ekki halda neina tónleika á meðan en stökk glaður á tækifærið sem honum bauðst hér á landi.

Vinnan á nýju plötunni hefur reyndar ekki gengið eins vel og Jens ætlaði. „Hverfið sem ég bý í (í Gautaborg) er orðið afar dökkt, þunglyndislegt og ofbeldisfullt. Ég hef verið rændur nokkrum sinnum og laminn af nasistum, pönkurum og íhaldsmönnum. Ég ætla þess vegna að flytja mig yfir í stúdíó við sjóinn hjá vinkonu minni, Söruh (tónlistarkonan El Perro Del Mar).“ Jens fór einnig í gegnum mikla sjálfsskoðun við upphaf upptökuferilsins og eyddi alls um 200 lögum úr safni sínu. „Svo hef ég verið að íhuga að flytja til Ástralíu og taka upp plötu á sænsku.“ En verður nýja efnið frábrugðið því sem áður hefur heyrst frá Jens? „Nei, þetta hljómar allt alveg eins.“

Jens hefur opinberlega lýst yfir aðdáun sinni á íslensku sveitinni Benna Hemm Hemm og segir sveitina hljóma öðruvísi og betur en annað sem hann hafi heyrt frá Íslandi. „Ég var orðinn leiður á dótinu sem ég var búinn að heyra, svona eitthvað sem tengdist íslenskum töfrum og stórbrotnu landslagi. Mér líkaði samt vel við það í fyrstu en finnst þetta núna frekar klisjukennt.“ Talið er víst að nokkrir meðlimir Benna Hemm Hemm muni troða upp með Jens sem vill þó lítið gefa upp. „Þetta á að koma á óvart.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×