Viðskipti innlent

Skiptar skoðanir um málfrelsi hluthafa á hluthafafundi

Pétur Guðmundarson fundarstjóri í Pontu Víglundur Þorsteinsson segir Pétur hafa brotið lög þegar hann meinaði hluthöfum í félaginu um að bera fram fyrirspurn.
Pétur Guðmundarson fundarstjóri í Pontu Víglundur Þorsteinsson segir Pétur hafa brotið lög þegar hann meinaði hluthöfum í félaginu um að bera fram fyrirspurn.

Í 3. mgr 80. gr laga um hlutafélög segir Öllum hluthöfum er heimilt að sækja hluthafafund og taka þar til máls.

Stefán Már Stefánsson, prófessor í lögfræði við Háskóla Íslands, segir að fyrirspurnir verði að vera í eðlilegu samræmi við efni fundar. Hins vegar sé nauðsynlegt að kanna hvers efnis fyrirspurn er áður en tekin er afstaða til þess hvort hún skuli tekin til umfjöllunar Hefði ég verið fundarstjóri hefði ég fyrst kannað hvers efnis fyrirspurnin væri. Hefði hún tengst dagskránni hefði ég leyft hana annars ekki.

Einungis eitt mál var á dagskrá fundarins; kosning stjórnar. Víglundur og Jóhann vildu fá að leggja fyrirspurnir til fráfarandi stjórnar að kosningu lokinni. Pétur fundarstjóri meinaði þeim hins vegar að taka til máls og vísaði til 15. gr samþykktar Straums-Burðaráss þar sem segir að slíka beiðni þurfi að leggja fram skriflega með viku fyrirvara hið minnsta.

Lögfróðir menn segja í hæsta máta óvenjulegt að hluthafar fái ekki að taka til máls á hluthafafundum og telja að 3. mgr 80. gr laga um hlutafélög tryggi málfrelsi hluthafa án tillits til dagskrár fundar.

Því hefur þó verið haldið fram að málfrelsið sé bundið við auglýsta dagskrá og að hlutverk fundarstjóra sé einungis að tryggja að hluthafafundur fari fram í samræmi við dagskrá. Hafi Víglundi og Jóhanni hugnast að ræða önnur mál hefði þeim verið í lófa lagið að nýta þann rétt sem þeir hafa samkvæmt 15. gr samþykktar Straums Burðaráss. Pétur Guðmundarson vildi ekkert láta hafa eftir sér um málið.

Víglundur Þorsteinsson gefur lítið fyrir þau sjónarmið að málfrelsi 3. mgr 80. gr sé bundið við auglýsta dagskrá 80. gr hlutafélagalaga er skýr og afdráttarlaus. Frá málfrelsi fundarmanna verður ekki gerð undantekning. Ég var ekki að flytja neitt mál fyrir fundinn heldur einungis að neita þess málfrelsis sem hluthöfum er tryggt. Því braut Pétur Guðmundarson lög.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×