Lífið

Magni með stórstjörnunum í glæsivillu

Magni Ásgeirsson 
Er kominn í 18 manna úrtak fyrir Rockstar: Supernova. 15 komast í þáttinn.
Magni Ásgeirsson Er kominn í 18 manna úrtak fyrir Rockstar: Supernova. 15 komast í þáttinn. MYND/Stefán
Það væsir ekki um söngvarann Magna Ásgeirsson sem þessa dagana dvelst í Los Angeles og berst fyrir því að komast í sjónvarpsþáttinn Rockstar: Supernova. Eins og Fréttablaðið hefur greint frá fóru fjórir Íslendingar utan fyrir skemmstu og reyndu fyrir sér í áheyrnarprufum fyrir þáttinn.

Þau sem fóru út voru Hreimur Örn Heimisson úr Landi og sonum, Idolstjarnan Aðalheiður Ólafsdóttir og Kristófer Jensson úr Lights on the Highway. Af þeim fékk Magni að halda áfram og hann er nú kominn í 18 manna úrtak. Af þeim verður valinn 15 manna lokahópur fyrir þættina. Upptökur hefjast í næsta mánuði og þættirnir verða sýndir á Skjá einum.

Fyrsta serían af Rockstar var sýnd síðastliðin vetur en þar leituðu liðsmenn áströlsku rokksveitarinnar að nýjum söngvara. Þættirnir nutu fádæma vinsælda og beint þótti liggja við að gera aðra seríu. Að þessu sinni er hljómsveitin Supernova í forgrunni en hana skipa trommarinn Tommy Lee, úr Mötley Crue, gítarleikarinn Gilby Clarke úr Guns N' Roses og Jason Newsted, fyrrum bassaleikari Metallica.

Erlendir fjölmiðlar hafa fjallað talsvert um væntanlega þáttaröð og nokkuð hefur verið gert úr því að Íslendingur skuli vera í 18 manna hópnum. "Sigurvegarinn gæti verið karlkyns, kvenkyns, frá Ástralíu, Íslandi eða hvaðan sem er," sagði bassaleikarinn Newsted í einu viðtali.

Í 18 manna hópnum eru átta konur og tíu karlar. Þetta fólk hefur síðustu vikuna dvalist í glæsivillu í Hollywood-hæðum en það mun verða heimili þátttakendanna á meðan upptökum stendur. Í næstu viku ætti að verða ljóst hvort Magni okkar Ásgeirsson kemst í 15 manna hópinn sem verður í þáttunum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×