Vinnur nýja rannsókn um samkeppnishæfni landsins 14. júní 2006 08:45 Porter á ráðstefnu í Indlandi Michael Porter er í hópi virtustu prófessora Harvard-háskóla en fræðasvið hans er stefnumótun með áherslu á samkeppnisyfirburði og fyrir rannsóknir sínar hefur hann öðlast alþjóðlega frægð og viðurkenningu. Nordicphotos/AFP Nordicphotos/AFP
Óli Kristján Ármannsson skrifar Einn virtasti viðskiptahugsuður samtímans, Michael E. Porter, kemur hingað til fyrirlestrahalds í haust í boði ráðgjafar- og rannsóknafyrirtækisins IMG. Porter lendir að morgni 2. október og verður dagskrá hans þéttskipuð allan daginn, enda flýgur hann af landi brott síðdegis. Um morguninn flytur Porter lykilfyrirlestur um samkeppnishæfni Íslands sem byggir á nýjum rannsóknum og verður honum síðar um daginn veitt heiðursdoktorsnafnbót við Háskóla Íslands. Þá heldur Porter fyrirlestur í Háskólabíói um stefnumótun í rekstri fyrirtækja og stofnana, auk þess að sækja heim forseta lýðveldisins á Bessastöðum. Hákon Gunnarsson, hjá IMG ráðgjöf sem undirbýr komu Porters, segir heimsóknina stórtíðindi fyrir alla sem láti sig stefnumótun og stjórnun varða. "Bækur Porters eru efst á leslistum á fjórða hundrað háskóla um heim allan og kenningar hans fastur liður í kennsluskrá allra skóla sem vilja skipa sér í fremstu röð," segir hann en IMG hefur í um ár undirbúið komu Porters í samvinnu við Háskóla Íslands, iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og styrktarfyrirtækin FL Group, Landsbankann, Fréttablaðið og NFS. Hann býst við góðri aðsókn á fyrirlestur Porters, enda ekki oft sem slíkar kanónur fræðanna sækja landið heim. Hægt verður að skrá sig á aðalfyrirlestur Porters á vef IMG ráðgjafar, www.img.is. Viðskipta- og hagfræðideild Háskólans tekur þátt í undirbúningi ráðstefnunnar um samkeppnishæfni Íslands og vinnur að gagnasöfnun fyrir rannsókn Porters. Að auki er svo í undirbúningi samstarf deildarinnar við Harvard-háskóla, þar sem Porter gegnir prófessorsstöðu, um kennslu í rekstrarhagfræði á meistarastigi með sérstakri áherslu á samkeppnishæfni fyrirtækja og þjóða. Er það stofnun Porters við Harvard sem hefur boðið viðskipta- og hagfræðideild til samstarfsins, en námið mun standa meistaranemum í öllum deildum Háskólans til boða, líkt og í þeim sextíu háskólum um allan heim sem einnig hefur verið boðið til samstarfsins. Michael Porter er eftirsóttur ráðgjafi bæði fyrirtækja og stjórnvalda um allan heim og hefur fengið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín. Meðal annars hefur hann verið sæmdur heiðursdoktorsnafnbót við Stockholm School of Economics, Erasmus University í Hollandi, Hautes Ecoles Commerciales í Frakklandi, Universidada Tecnica de Lisboa í Portúgal, Adolfo Ibanez University í Chile og INCAE í Mið-Ameríku.
Mest lesið Íslandsbanki hækkar vexti Viðskipti innlent Þú þarft ekki að vera bílasérfræðingur til að versla í Bílanaust Samstarf Elín Hirst stofnar fyrirtæki Viðskipti innlent Vænir Íslandsstofu og M&C Saatchi um stuld á höfundarréttarvörðu efni Viðskipti innlent Ný þota gefur færi á beinu flugi til Mexíkó og Indlands Viðskipti innlent Ekkert verði úr fyrirhugaðri verðbólgu fylgi aðrir fordæmi IKEA Viðskipti innlent Tannlæknastofa í Reykjavík og Búdapest fær viðurkenningu Samstarf „Að stjórn skelli skuldinni á tæknistarfsmann er einfaldlega ekki í boði“ Atvinnulíf Hömlulaus einokun á Keflavíkurflugvelli Viðskipti innlent Nýr Nissan LEAF er á leiðinni Samstarf Fleiri fréttir Íslandsbanki hækkar vexti Segir styttast í niðurstöður samráðs vegna kjarasamninga Elín Hirst stofnar fyrirtæki Hefur daglegt flug milli Keflavíkur og Fíladelfíu næsta sumar Hafnar því að hafa snuprað tækni- og hugverkaiðnaðinn „Hafa pakkað niður sleggjunni og eru tilbúnir að senda hana til Brussel“ Gagnrýna Viðskiptaráð fyrir að sleppa fjórðu útflutningsstoðinni Verðbólga eykst: Forsendur kjarasamninga brostnar Brynjar Már fer yfir til Corus frá Isavia Auknar tekjur og minni kostnaður Guðmundur Fertram verður sérlegur erindreki Atvinnuleysi jókst í júlí Hreiðar vill hægja á og selja Stracta-hótel Nýr og umdeildur Gotti tekinn úr loftinu Eggert skipaður forstjóri Hafrannsóknastofnunar Hótelin fá ný nöfn Hættir sem forstjóri Elkem og hefur störf hjá Travel Connect Af hverju eru allir að eyða svona miklu? Alvotech tekur stökk eftir greiningu Bank of America Högnuðust um hálfan annan milljarð Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Sýn+ verður líka línuleg sjónvarpsstöð Hætta við kaup á vef- og útvarpsmiðlum Sýnar Reglugerðir ESB hafi „sérstaklega slæm áhrif á Ísland“ Fasteignaverð rokið upp eftir inngöngu í ESB Landsbankinn hækkar líka vexti Jón Þór fer til Samherja Þorgeir Pálsson nýr mannauðsstjóri Háskólans á Bifröst „Eftir að koma í ljós“ hvort íslenskar áhafnir manni leiguflug Icelandair Sektaður um 65 milljónir fyrir miðlun innherjaupplýsinga Sjá meira