Viðskipti innlent

Túlkunin stendur

Jónas Fr. Jónasson, forstjóri FME Jónas segir að hvergi í Evrópu sé yfirtökuskildum aðilum í sjálfsvald sett að selja sig niður og losa sig þannig undan tilboðsskyldu.
Jónas Fr. Jónasson, forstjóri FME Jónas segir að hvergi í Evrópu sé yfirtökuskildum aðilum í sjálfsvald sett að selja sig niður og losa sig þannig undan tilboðsskyldu.

Hafi yfirtökuskylda myndast er ekki heimilt að selja aftur þann hluta sem er umfram leyfileg mörk nema með samþykki Fjármálaeftirlitsins. Þetta kemur fram í nýrri túlkun þess. Yfirtökunefnd, sem er samstarfs- og leiðbeiningaraðili skráðra félaga og þeirra sem fjárfesta í þeim, er ósammála túlkun Fjármálaeftirlitsins. Telur nefndin ekkert í lögum sem banni viðkomandi að selja sig niður. Yfirtökunefnd er þó ekki eftirlitsaðili og hefur hvorki lögbundnar eftirlitsheimildir né þvingunarúrræði.

Fjármálaeftirlitið er hinn opinberi eftirlitsaðili og hefur lagaheimildir til að sinna eftirlitsskyldu sinni og heimildir til að beita þvingunarúrræðum.

Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að nauðsynlegt sé að líta til tilskipana Evrópusambandsins og á framkvæmdir í öðrum löndum við túlkun á íslenskum lögum. Hvergi séu þess dæmi að yfirtökuskyldum aðila sé í sjálfsvald sett að selja sig niður og losna þannig undan tilboðsskyldu. Hann segir tvær leiðir mögulegar, annars vegar að í lögum séu skýr hlutlæg skilyrði hvenær menn geti selt sig niður eða að eftirlitsaðila sé falið að veita undanþágur og síðari leiðin hafi verið farin hér á landi.

Hvort lög um verðbréfaviðskipti hér á landi séu óskýr og hvort þörf sé á breytingum vill Jónas ekki taka afstöðu til og segir það löggjafans að meta. Hann segir þó viss álitaefni hafa komið upp varðandi túlkun ákvæða laga um verðbréfaviðskipti og til þess að mæta þeim setji Fjármálaeftirlitið fram túlkanir sínar á lögum. Enginn vafi þurfi því að leika á þeirra afstöðu varðandi þetta málefni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×