Túlkunin stendur 14. júní 2006 08:30 Jónas Fr. Jónasson, forstjóri FME Jónas segir að hvergi í Evrópu sé yfirtökuskildum aðilum í sjálfsvald sett að selja sig niður og losa sig þannig undan tilboðsskyldu.
Hafi yfirtökuskylda myndast er ekki heimilt að selja aftur þann hluta sem er umfram leyfileg mörk nema með samþykki Fjármálaeftirlitsins. Þetta kemur fram í nýrri túlkun þess. Yfirtökunefnd, sem er samstarfs- og leiðbeiningaraðili skráðra félaga og þeirra sem fjárfesta í þeim, er ósammála túlkun Fjármálaeftirlitsins. Telur nefndin ekkert í lögum sem banni viðkomandi að selja sig niður. Yfirtökunefnd er þó ekki eftirlitsaðili og hefur hvorki lögbundnar eftirlitsheimildir né þvingunarúrræði. Fjármálaeftirlitið er hinn opinberi eftirlitsaðili og hefur lagaheimildir til að sinna eftirlitsskyldu sinni og heimildir til að beita þvingunarúrræðum. Jónas Fr. Jónsson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, segir að nauðsynlegt sé að líta til tilskipana Evrópusambandsins og á framkvæmdir í öðrum löndum við túlkun á íslenskum lögum. Hvergi séu þess dæmi að yfirtökuskyldum aðila sé í sjálfsvald sett að selja sig niður og losna þannig undan tilboðsskyldu. Hann segir tvær leiðir mögulegar, annars vegar að í lögum séu skýr hlutlæg skilyrði hvenær menn geti selt sig niður eða að eftirlitsaðila sé falið að veita undanþágur og síðari leiðin hafi verið farin hér á landi. Hvort lög um verðbréfaviðskipti hér á landi séu óskýr og hvort þörf sé á breytingum vill Jónas ekki taka afstöðu til og segir það löggjafans að meta. Hann segir þó viss álitaefni hafa komið upp varðandi túlkun ákvæða laga um verðbréfaviðskipti og til þess að mæta þeim setji Fjármálaeftirlitið fram túlkanir sínar á lögum. Enginn vafi þurfi því að leika á þeirra afstöðu varðandi þetta málefni.
Mest lesið Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Viðskipti innlent Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Viðskipti innlent Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Viðskipti innlent Hundruðum sagt upp í maí Viðskipti innlent Engar málamiðlanir í 810 kílómetra drægni Samstarf Þegar átta stunda vinnudagur og fimm daga vinnuvika þóttu stórhættulegar hugmyndir Atvinnulíf Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Viðskipti innlent Gengi Oculis hrynur Viðskipti innlent Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Viðskipti innlent Innkalla pipar vegna eiturs Neytendur Fleiri fréttir Hundruðum sagt upp í maí Næst stærsti hluthafi Icelandair segir óbreytta stöðu ekki valkost Opna opinbera upplýsingagátt um almyrkvann Hagnaðurinn tæplega tvöfaldaðist milli ára Vildu leggja stór deiluefni til hliðar til að skapa starfsfrið Einar einbeitir sér að norðurslóðum og Hjalti tekur við Gengi Oculis hrynur Tuttugustu ferð Icelandair aflýst vegna manneklu Samþykkja að kaupa Lýsi og selja í öðrum félögum fyrir milljarða Hröð og slæm þróun á fasteignamarkaði Aflýsa sex flugferðum vegna áhafnarskorts Atvinnuleysi lækkar en óvissa eykst Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Sjá meira