Viðskipti innlent

Atlantsskip leigja nýtt skip

atlantsskip
atlantsskip
Atlantsskip hafa tekið nýtt skip á leigu. Segir í tilkynningu frá félaginu að fyrsta hlutverk þess verði að létta á Evrópuflutningum félagsins en síðan fari það í siglingar milli Íslands og Ameríku.

Nýja skipið nefnist Camira og er 375 gámaeiningar að stærð. Þegar skipið verður tekið til notkunar í Ameríkusiglingum Atlantsskipa þrefaldast flutningsgeta félagsins á þeirri leið.

Fyrir eru í flota Atlantsskipa Arnarnes og Káranes sem sigla til Evrópu og Geysir á Ameríkuleið.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×